156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:05]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Hv. þingmaður vekur athygli á t.d. þessum veika grunni sem afkoman byggir á. Það er næfurþunnur afgangur þegar hann á að koma. Gefum okkur það að menn taki þetta bara svona jafnt og þétt, þá eru það um 6 milljarðar á ári sem þurfa að bætast við þannig að það eru 6 milljarðar 2027, 12 2028, 18 2029 og 24 2030. Í ofanálag getur þú gert ráð fyrir, ef þú heldur jöfnunarframlaginu áfram, í það minnsta 4 milljörðum í viðbót þannig að við erum komin í halla allan tímann. Hv. þingmaður vísaði líka hér til þess sem ekkert hefur verið rætt nema hv. þingmaður tók það upp og það eru skuldirnar, hann ræddi stöðugleikaregluna og kom líka inn á skuldirnar.

Ég vil spyrja hv. þingmann að tvennu. Menn tala svolítið um útgjöldin á síðasta kjörtímabili, hvernig þeim var forgangsraðað. Það er svolítið talað eins og þetta hafi ekki skipt neinu máli, menn hafi bara verið að eyða í eitthvað og sóa. Hver var áherslan hjá hv. fjárlaganefnd á þeim tíma? Sömuleiðis með þessa nýju skuldareglu, eins og þetta lítur út fyrir mér og ég vildi fá sjónarmið hv. þingmanns á þá er þetta regla sem átti svo sannarlega að bæta en hún var þó einhver regla. Hér erum við að sjá að (Forseti hringir.) þetta er meira bara orð á blaði og alveg sama í rauninni hvernig menn haga sér þá get ég ekki séð að (Forseti hringir.) það sé neitt sem hamli mönnum í því að standa ekki við það að lækka skuldir og (Forseti hringir.) ná þar af leiðandi markmiðum sem eru til staðar. Hvernig lítur hv. þingmaður á þau mál?

(Forseti (BHar): Forseti minnir á tímamörk.)