156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:11]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir upplýsandi svar. Ég vil líka spyrja hv. þingmann út í það sem hann vakti athygli á í fyrri umræðu um þetta mál, þ.e. mælikvarðana. Ég held að margir skilji ekki, eðlilega, ef þeir eru ekki að vinna í þessu, hvaða máli það skiptir þegar þú ert að gera áætlanir að þú sért með einhverja mælikvarða um árangur. Nýlundan í þessari fjármálaáætlun er að menn tóku bara út mælikvarðana sem gerði það að verkum, eins og hv. þingmaður vakti athygli á, mjög myndarlega, í fyrri umræðu um málið, að við gátum ekki tekið samræðu við fagráðherrana út af því. Bara svona fyrir hinn almenna leikmann: Hvaða máli skipta mælikvarðarnir? Af hverju voru mælikvarðarnir settir inn? Ég veit að hv. þingmanni finnst skrýtið að ég spyrji að þessu en við verðum líka að hafa það í huga að við þurfum að koma upplýsingum til almennings af hverju það er svona alvarlegt að menn séu að breyta verklaginu þegar kemur að þessu, í þessu tilfelli í fjármálaáætlun. En sömuleiðis, virðulegur forseti, er það kannski gott að hv. þingmaður var formaður fjárlaganefndar og veit hver munurinn er á þessu af því að við áttum nú samtal við alla fagráðherra í tengslum við þetta — ef hv. þingmaður myndi aðeins upplýsa um hver munurinn væri, þá og nú, þegar kemur að þessum málum.