156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:13]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög gott andsvar síðara sinni. Mælikvarðarnir og markmiðin eru náttúrlega grunnforsenda þess að það sé hægt að fylgjast með því í hvað fjármagnið fer og hvernig það er nýtt og hvernig samanburðurinn er árin á undan. Það er engin tilviljun og það er ekkert bara af því bara að þetta er haft með þessum hætti í lögum um opinber fjármál og það er ekkert af því bara að þetta var sett inn í lögin með nákvæmlega þessum hætti, að markmiðin og mælikvarðarnir ættu að vera til staðar í fjármálaáætlun því þannig er hægt að taka alvöruumræðu um það hvernig okkur gengur með hvert einasta málefnasvið. Þetta er grunnurinn og það er búið að taka þetta út. Það er bara mjög vont. Það verður til þess að við sem erum að ræða þessa fjármálaáætlun höfum ekki sömu upplýsingar og við höfum haft. Hv. þingmaður spurði hvernig þetta hefði verið. Ég get sagt hv. þingmanni að þetta var ekki svona vegna þess að þessir mælikvarðar voru inni og það var einmitt gert fyrir þingið til þess að það gæti með betri hætti glöggvað sig á því hvert við værum að fara og ekki síður hvaðan við værum að koma. Það er bara mjög mikilvægt í allri ákvarðanatöku að þú hafir þessar upplýsingar og að þingið hafi þetta á kristaltæru.

Það er búið að boða breytingar, að þetta verði með einhverjum gagnvirkum hætti á síðu fjármálaráðuneytisins, en mér skilst að þetta eigi að birtast með ársskýrslum ráðherra. Það er bara ekki nógu gott. (Forseti hringir.) Ég trúi ekki öðru en að fjármálaráðuneytið og hæstv. ráðherra sjái að sér í þessu og (Forseti hringir.) hlusti á okkur þingmenn sem erum að kalla eftir því að þetta verði haft með áætluninni vegna þess að það skiptir máli að það sé þarna.