fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Það eru nefnilega nokkur atriði. Við höfum setið lengi saman í fjárlaganefnd, þó að ég hafi ekki verið núna seinni hluta vetrar í þeirri nefnd. En það eru nokkur atriði sem maður sér svona utan frá sem eru svolítið áhugaverð og svolítið ný. Þetta er áhugavert varðandi ársskýrslu ráðherra, að taka þetta svolítið út úr eftirlitshlutverki þingsins og draga þetta inn í ársskýrslur ráðherra, sem eru kannski að koma fram í júlí, ágúst svona sögulega og munu ekki fá neina umfjöllun hér í þinginu ef þær koma á þessum hefðbundna tíma, í staðinn fyrir að vera með þetta inni í áætluninni sem er miklu eðlilegra ferli og eðlilegra fyrir eftirlitshlutverk hv. þingmanna.
Það vakti síðan sérstaka athygli þegar við ræddum þessa veiku skuldareglu, eða hvað við eigum að kalla þetta, og fjölluðum um 1,5% í varnartengdu starfseminni — sem gengur raunverulega út á að efla áfallaþol samfélagsins, hvort sem það eru brýr eða vegir, hafnir, flugvellir, uppbygging þeirra, fjarskipti eða hvaða kerfi sem er verið að nota, almannavarnakerfið — að þetta sé tekið út fyrir sviga með þessum hætti sem er boðað og hefur verið boðað núna í vor og í gegnum þetta mál og við ræddum líka um daginn. Þetta er sérstakt. Ef ég gæti kannski fengið skoðun hv. þingmanns á því. Síðan líka hversu mikið var rætt í hv. fjárlaganefnd það sem snýr að almannatryggingum og launavísitölu þar sem er verið að setja fjármálin á sjálfstýringu. Meira að segja var það þannig í velferðarnefnd að minni hlutinn fékk ekki þá ósk sína uppfyllta að fá umsögn frá fjárlaganefnd um jafn viðamikið mál þar sem er raunverulega verið að setja fjárlög ríkisins á sjálfstýringu með þessum hætti.