156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:20]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að þetta sé náttúrlega alveg ótrúlegt allt saman með almannatryggingamálið og að tengja við launavísitölu. Minnisblaðið sem kom og minni hluti hv. velferðarnefndar óskaði eftir er gríðarlega fróðlegt, minnisblað upp á sex, sjö síður, ef ég man rétt, sem snýr að þessu þar sem fjármálaráðuneytið varar við því að setja ríkisfjármálin, setja fjárlög á sjálfstýringu eins og verið er að gera með því að setja 20% fjárlaganna á sjálfstýringu með þessum hætti. Almennt er reglan, svo það sé nú tekið fram vegna þess að hv. varaformaður fjárlaganefndar kom inn á það hér áðan, að ríkið setur almennt ekki vísitölur á fjármálaliði ríkisins. Það er útúrsnúningur. Þjónustusamningar og annað, þannig hefur bara ekki verið unnið í gegnum árin. Það er mikilvægt að halda því algjörlega til haga. Það vekur náttúrlega mikla furðu ef þessu risamáli um almannatryggingar og þessa sjálfstýringu og þá breytingu sem fer gegn lögum um opinber fjármál upp á aga og festu og annað er bara hleypt lausu. Það er náttúrlega ótrúlegt. Það sem hefur verið notað hingað til er bara launaþróun yfir ákveðið tímabil. Það kemur einmitt fram í minnisblaði fjármálaráðuneytisins að almannatryggingar hafa hækkað um, hvort það var 18 frekar en 8% frá 1997, umfram launavísitölu, bæturnar í kringum það kerfi. En aðalatriðið sem er verið að leggja áherslu á þar er að það geti verið sveiflujafnandi og unnið með hagkerfinu, hagsveiflunum, og það sé eðlileg nálgun. Ef við setjum bara allt á vísitölur og ríkisfjármálin þá þurfum við yfirleitt ekkert að vera að ræða þetta mikið. (Forseti hringir.) Þá verður þetta ekkert rætt hér, þessi liður sem við erum að ræða í dag. Þá getum við sleppt fjármálaáætlun.