fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Þá getum við sleppt fjármálaáætlun, segir hv. þingmaður. Ég hélt nú á tímabili að við ætluðum að gera það og fagnaði því umræðunni í þingsal í dag um hana einmitt, en sjáum til. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um að við þurfum að vara okkur á því og við höfum tekið umræðu ansi oft um það í fjárlaganefnd með þessa liði sem eru þannig úr garði gerðir að við höfum í raun og veru enga skýringu á þeim þegar við erum búnir að samþykkja þá. Þetta eru bara pottar án loks. Það er mjög vont — og nú hefur það ekkert með málefnið að gera, ég er alls ekki að tala um málefnið sem slíkt heldur bara um prinsippið — þegar við erum í umræðu hér og tala nú ekki um í vinnu við að ná stefnumarkandi aðgerðum stjórnvalda fram, hvort sem það er í fjárlögum eða fjármálaáætlun, og við erum með ákveðinn hlut fjárlaganna sem við höfum enga skýringu á. Það er óþægileg staða að vera í. Því færri slík tilvik, því betri stýringu náum við á opinberum fjármálum. Það er augljóst. En ég er sammála hv. þingmanni hvað það varðar og ég er sammála honum í því að að sjálfsögðu er það betri leið ef að við getum útbúið kerfi með þeim hætti að þau vinni með hagsveiflunni en ekki á móti.