156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:25]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Það hefur verið áhugavert að fylgjast hér með umræðunum í morgun sem hafa verið málefnalegar og áhugaverðar í alla staði. Ég sit í fjárlaganefnd eins og þeir félagar mínir sem áður hafa talað og mér finnst að vinnan hafi verið góð og málefnaleg í nefndinni, við höfum skipst á skoðunum og ég held að í grunninn séum við sammála um stóru drættina. Nefndarálit minni hlutans kom ekki fram fyrr en í morgun þannig að ég hef ekki getað glöggvað mig mjög vel á því en ég renndi yfir það í stórum dráttum og mín fyrsta hugsun var sú að við hefðum kannski ekki endilega verið að sitja sömu fundina miðað við hvað það nefndarálit segir. En þau eru auðvitað mjög ólík, nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar og nefndarálit minni hluta fjárlaganefndar. Eitt held ég þó að við séum sammála um, við viljum auðvitað að halda vel um fjármálin og við erum sammála um markmiðin þó svo að leiðirnar séu kannski ekki alveg þær sömu.

Fyrir mér er það þannig að fjármálaáætlunin er mjög metnaðarfull. Hér var talað um áðan að tekjugrunnurinn væri veikur og þetta væri allt saman veikt. En stóru fréttirnar eru auðvitað þær að það er verið að snúa af braut viðvarandi hallareksturs ríkisins og gera ráð fyrir hallalausum fjárlögum 2027 og við verðum komin í afkomubata 2028. Það er ári fyrr heldur en núgildandi áætlun gerir ráð fyrir og ég held að það sé stórt. Það má auðvitað tína til að hér hafi verið erfiðar aðstæður og það er alveg rétt. Það var auðvitað Covid-faraldur og svo kom Grindavík upp o.s.frv. Það munu auðvitað koma upp slíkar aðstæður áfram en ég held að það sé gríðarlega stórt að við séum komin á réttu brautina. En það skiptir þá máli að fjármálaáætlun standist og vinnan í fjárlaganefnd í haust mun taka mið af því að gera fjárlögin þannig úr garði að þau verði innan fjármálastefnu. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt og ég veit að nefndarmenn munu allir vinna saman í því að láta það allt haldast í hendur.

Fjármálaáætlun styður við stefnu ríkisstjórnar um stöðugleika í efnahagslífinu og markvissa lækkun vaxta. Það skiptir máli. Stjórn ríkisfjármála undanfarin ár hefur leitt til þess að staða ríkissjóðs hefur verið ósjálfbær vegna of mikils útgjaldavaxtar og auðvitað í ljósi gríðarlega hárra vaxtagreiðslna. Fjármálaáætlun tryggir sjálfbær ríkisfjármál á ný og þetta skiptir ofboðslega miklu máli. Við þurfum einhvern veginn að vera saman í því að tryggja sjálfbær ríkisfjármál sem stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum sem er það besta sem við getum gert fyrir almenning í þessu landi og atvinnulífið. Það ætti að vera sameiginlegt markmið okkar allra.

Það hefur aðeins verið talað hér um þessa 107 milljarða kr. sem eru vegna hagræðingar á tímabilinu. Hér hefur komið fram hjá nefndarmönnum minni hluta í fjárlaganefnd að þeim finnist þetta vera ekki skilgreint og þetta sé óútfært. En þetta er auðvitað rammi sem við erum að tala um. Það er í fjárlagafrumvarpinu sem slíku sem verður birt í haust sem við sjáum betri skýringar og hvernig þetta birtist. Fjármálaáætlun er rammi, mér finnst við þurfa að horfa svolítið á það. Ég hef heyrt það í ræðum í morgun að fólk er að kalla eftir meiri útfærslu á ákveðnum tillögum en ég horfi á þetta þannig að þetta sé rammi. Við erum fyrst með stefnuna, svo kemur ramminn sem afmarkar sviðin, ráðuneytin og málaflokkana og svo eru það fjárlögin sem slík sem eru lögð fram á hverju einasta hausti sem verða með betri skilgreiningum og nánari útfærslum á því hvernig þessi hagræðing birtist.

Það hefur líka verið mikið rætt hér í morgun um innleiðinguna á stöðugleikareglu. Það kom fram hjá framsögumanni nefndarálits meiri hluta fjárlaganefndar, Degi B. Eggertssyni, að fjármálaráð sem tekur út okkar vinnu og vinnu stjórnvalda í fjármálum fagnar stöðugleikareglunni. Þess vegna kemur mér töluvert á óvart þessi óvægna gagnrýni nefndarmanna minni hlutans á stöðugleikaregluna af því að ég hefði haldið að við ættum að sameinast um hana. Hún skiptir gríðarlega miklu máli og ég tel að hún eigi eftir að skila betri árangri heldur en fyrri útgjaldaregla sem verður afnumin. Fjármálaráð tekur á þessu í sinni umsögn sem mér finnst skipta máli. Ég sit auðvitað í fyrsta skipti í fjárlaganefnd og það skiptir mig máli að fjármálaráð sé sammála þessari leið og ég hefði haldið að við nefndarmenn í fjárlaganefnd ættum að sammælast um þetta, að þetta sé skynsamlegt að gera. En það er nú bara eins og það er.

Það eru skýr skilaboð sem fylgja fjármálaáætlun, skýr skilaboð um forgangsröðun ríkisstjórnarinnar sem birtast hér. Skilaboðin byggja auðvitað á samtölum við fólkið í landinu, hvað skiptir máli og hvað við þurfum að leggja áherslu á. Það eru heilbrigðismálin, það eru efnahagsmálin og það eru sterkir innviðir. Það eru svona þættir sem fjármálaáætlun ber keim af og skipta þá flokka sem mynda hér ríkisstjórn gríðarlega miklu máli.

Sá málaflokkur sem skiptir landsmenn allra mestu máli er heilbrigðismálin. Það verður 57 milljarða kr. aukning til heilbrigðismála á tímabilinu og þar kannski vegur þyngst fjölgun hjúkrunarrýma. Það þekkjum við hér, það er brýn nauðsyn að fjölga hjúkrunarrýmum og þess vegna er gleðilegt að sjá að það er verið að rjúfa þessa kyrrstöðu sem hefur verið í uppbyggingu hjúkrunarrýma, við erum að eldast þannig að það skiptir máli að við náum að byggja fleiri hjúkrunarrými. Áhersla sem líka birtist í fjármálaáætlun er að stytta biðlista barna og auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og meðferðarúrræðum vegna fíknivanda. Þetta eru mál sem ég veit og þarf ekkert að efast um það að við erum öll sammála um og þetta birtist svo sannarlega í fjármálaáætluninni.

Framlög til félags-, húsnæðis- og tryggingamála eru að aukast um 38 milljarða á tímabilinu. Þar vegur kannski þyngst nýja almannatryggingakerfið, örorku- og tryggingakerfið, sem á að setja 18 milljarða kr. í á ársgrundvelli. Hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson nefndi það hér áðan að það er kannski eitt sem er ekki inni í fjármálaáætluninni, þ.e. jöfnunarframlagið til lífeyrissjóða. Við hv. þingmaður sitjum líka bæði í efnahags- og viðskiptanefnd og þar höfum við verið að ræða frumvarpið um víxlverkunina sem er auðvitað til þess fallið að tryggja öryrkjum þær réttarbætur sem eru í nýja almannatryggingakerfinu. Það eru þessir 18 milljarðar og þetta tengist allt. Við nefnum það í nefndarálitinu að það þurfi að taka tillit til þess og gera ráð fyrir þessu jöfnunarframlagi. Við ræddum það talsvert í efnahags- og viðskiptanefnd hvort það ætti að vera einhver tala. En við settum það hér í fjármálaáætlun að við verðum að ávarpa það. Ef það á að samþykkja frumvarpið um víxlverkunina og það kemur mjög sterkt fram í meirihlutaáliti efnahags- og viðskiptanefndar þá verður að koma til þessa jöfnunarframlags. Staðan er sú að það er verið að semja um það milli lífeyrissjóðanna og fjármála- og efnahagsráðuneytisins þannig að það er kannski erfitt að setja einhverja tölu á það en í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar kemur skýrt fram að það verði að horfa til þess. Það er hér á bls. 13 ef áhugasamir vilja lesa það alveg skýrt.

Svo er það það sem skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli, aukning til samgöngumála. Það er verið að auka framlög til samgöngumála úr 66 milljörðum í 74 milljarða og þar fara 7 til vegabóta og viðhaldsþjónustu strax á árinu 2026, sem við höfum rætt hér. Svo megum við ekki gleyma þeim 3 milljörðum sem eru í fjárauka III. Þetta verkefni skiptir gríðarlega miklu máli og er eitt af áherslumálum þessarar ríkisstjórnar, þ.e. að bæta innviði þessa lands. Áætlunin gerir ráð fyrir því að við aukum jafnt og þétt framlög til samgöngumála enda er innviðaskuldin í vegagerð orðin ógnvænleg og það þekkjum við íbúar landsbyggðarinnar vel. Við sátum fund hjá Samtökum iðnaðarins í vor þar sem var verið að ræða innviðaskuld í vegakerfinu og ef ég man rétt þá var hún á bilinu 265–290 milljarðar kr., þannig að þetta er kannski ekki mikið í því samhengi en skiptir gríðarlega miklu máli.

Í þessari áætlun er innviðafélag sem stendur til að stofna í samvinnu við lífeyrissjóði þar sem á að reyna að brjóta þá kyrrstöðu sem hefur verið til að mynda í jarðgangaframkvæmdum, sem ekki er vanþörf á. Þetta eru ekki bara jarðgöng, það eru líka brýr og önnur stór verkefni og það hafa, eftir því sem ég best veit, þegar verið haldnir fyrstu fundir um það stóra verkefni.

Svo eru nokkur atriði sem birtast í nefndaráliti meiri hlutans sem mér finnst skipta máli að nefna hér en auðvitað fór framsögumaður málsins vel yfir þetta. Það eru hjúkrunarheimilin sem ég nefndi áðan og svo finnst mér líka rétt að nefna framlögin til uppbyggingar verknámsskóla um allt land. Það var umræða hér ekki alls fyrir löngu um að það væri mögulega búið að slá það af vegna tekjutilfærslna á þessu ári. En það kemur alveg skýrt fram í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar að það sé mikilvægt að styðja við iðn- og verknám og byggja við framhaldsskóla. Það er á bls. 12 í nefndarálitinu ef fólk vill skoða það. Þá er það bara alveg skýrt hvar hugur okkar liggur í því. Það á að byggja við fimm verknámsskóla og svo þarf að halda áfram af því að þetta er auðvitað eitt af áhersluatriðum þessarar ríkisstjórnar, að styðja við verknám um allt land.

Hv. framsögumaður álits meiri hluta nefndarinnar, Dagur B. Eggertsson, fór yfir þjóðarhöllina, það skiptir líka mjög miklu máli að koma henni í höfn og það hefur verið sátt um það meðal þingmanna að það sé verkefni sem skipti alla máli og við verðum að klára að fara í. Svo langar mig að nefna, það er kannski dálítið sértækt mál, en mér finnst rétt að nefna það að í breytingartillögum meiri hlutans erum við að leggja til breytingu á fiskeldisgjaldi. Fyrri ríkisstjórn hafði fyrirhugað að hækka fiskeldisgjaldið en hér er lagt til að það verði tekið til baka. Það þýðir tekjulækkun um 400–500 millj. kr. á ári. Við höfum mikið verið að tala um atvinnulíf á landsbyggðinni og það skiptir máli að þetta sé lækkað. Það þýðir ekki að það megi ekki einhvern tímann hækka gjaldið en ég tel mikilvægt að það sé gert í samræmi við nýja stefnumótun um uppbyggingu lagareldis sem hæstv. atvinnuvegaráðherra hefur boðað hér í haust. Þá held ég að sé mikilvægt að skoða gjaldahliðina og tekjuhliðina á því máli og það verður gert í ákveðnu samhengi og ég held að það sé mikilvægt þannig að stefnumótunin haldist í hendur við gjaldtöku af greininni o.s.frv. Við tökum þá tillit til þess þegar það mál verður lagt fram í haust eins og hæstv. ráðherra hefur þegar sagt.

Mér finnst að vinnan hafi bara verið góð í nefndinni og nefndarálitið gott. Það urðu talsverðar breytingar í vinnu nefndarinnar. Það náðist að semja um ÍL-sjóð og við náðum að selja Íslandsbanka. Allt eru þetta risastórar fréttir fyrir okkur sem viljum halda vel utan um fjármálin. En ég vil þakka hv. nefndarmönnum í fjárlaganefnd fyrir góða vinnu og gagnlega og ég hef lært mikið af henni, ekki síst af nefndarmönnum sem hafa allir lagt ýmislegt á borðið sem hefur verið gagnlegt fyrir mig og svo erum við heppin eins og í öðrum nefndum þessa þings að við erum með frábæra starfsmenn sem hafa liðsinnt okkur mjög mikið og ekki síst nýjum þingmönnum eins og mér. Ég vil bara þakka þessum nefndarmönnum, ég veit að þeir eru hérna nokkrir inni, fyrir mjög gott samstarf í nefndinni.