fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður kom aðeins inn á viðvarandi hallarekstur en svo fór hún, sem er svolítið nýtt miðað við umræðuna á undanförnum mánuðum, að tala um Covid og fleiri áföll sem við höfum átt við. Umræðan hefur verið furðuleg síðan í haust þegar við erum að ræða um ríkisfjármálin, það er eins og ekkert hafi gerst á síðustu árum. Þess vegna er ég að koma með fyrirspurn í þinginu, sem er að detta inn, til fjármálaráðherra til að glöggva okkur á og fá það bara á hreint það sem snýr einmitt að því hvað gerðist 2019 með WOW air og hvaða áhrif það hafði, Covid 2020 og 2021, stríðið í Úkraínu, Reykjaneseldar, loðnubrestur og ýmislegt sem er búið að ganga á, fá þetta svolítið fram til að upplýsa svolítið umræðuna þegar við erum að ræða ríkisfjármálin. Ég held bara að almennt sé fólk ekki búið að átta sig á hvers konar áföllum við höfum lent í. Ég held að þetta séu á milli 700 og 800 milljarðar, sýnist mér. Þetta eru ekkert flóknir útreikningar. Ég man þegar við vorum í fjárlaganefnd í mars 2020 að vinna með fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 að þá var reiknað með 1.000 milljarða halla í fjármálaáætlun vegna Covid. Það fór þó mun betur heldur en var reiknað með þá og þetta gekk betur að komast út úr þessu og kannski mikið að þakka ferðaþjónustunni, hún fór af stað af fullum krafti að afla gjaldeyris og sjávarútvegurinn kom ágætlega út úr þessu og allt það. En þá var einmitt verið að miða við að skuldahlutfallið færi upp í 54% af landsframleiðslu, sem er í rétt rúmum 30% í dag. Það er gott held ég fyrir alla umræðuna að við fáum þetta bara beint fram þannig að við getum kannski farið að tala um þessa hluti með einhverjum ábyggilegum hætti, tengt gögnum og við höfum þekkingu á því.
Síðan vil ég ræða líka vaxtajöfnuðinn, ég tek það kannski í næsta andsvari, við byrjum bara á þessum hluta.