fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég held að mörg okkar viljum reyna að gleyma Covid, þetta sé nú bara þannig, þetta var ekki góður tími fyrir þjóðina að ganga í gegnum, en við komumst í gegnum það. Það var nú kannski ekki bein spurning í þessu varðandi Grindavík og svo Covid. Það kom fram á opnum fundi með Seðlabankanum hér fyrr í vetur að það er kannski helst það að stuðningurinn vegna Covid hafi verið of lengi, við hefðum fyrr mátt minnka stuðninginn vegna þeirra aðgerða. Það er bara eitthvað sem við lærum á, við þurfum náttúrlega alltaf að læra af þessu, Covid, Grindavík og svo mun auðvitað koma upp eitthvað meira, þetta er bara þannig, við lifum bara í þannig heimi. Við höfum verið að tala mikið um óvissutíma í alþjóðastjórnmálum. Við vitum ekkert hvað gerist. Þá skiptir máli þegar við lifum á svona hálfgerðum óvissutíma að vera með sterkan ríkissjóð af því að það munu koma áföll og þá skiptir máli að taka til í ríkisfjármálunum, hagræða og það skiptir máli að standa vörð um velferðarkerfin okkar. Þetta þarf einhvern veginn allt að haldast í hendur. En það mikilvægasta sem við gerum fyrir almenning í landinu og fyrir fyrirtækin er að ná niður verðbólgu og lækka vaxtastig og það skiptir auðvitað ríkissjóð líka gríðarlega miklu máli. Það er verkefni sem ég held að við ættum að sameinast um og ég veit að um þessi markmið er allur þingheimur sammála. En ég held að enginn sé eitthvað að reyna að gleyma Covid eða Grindavík, þetta voru bara ákveðnar áskoranir sem þurfti að takast á við. Margt gekk vel, annað hefði mátt ganga betur og það er bara verkefni sem við lærum af.