fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég gleymdi áðan að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið og nú þakka ég honum tvisvar. — Hér eru komnir góðir gestir á þingpallana, en ánægjulegt. Já, ég vil þakka honum fyrir seinna andsvarið og við erum alveg sammála um það að það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að borga niður skuldir. Eins og við höfum rætt áður þá munu koma áföll og við verðum að tryggja áfallaþol ríkissjóðs og við erum að reyna að takast á við þessa áskorun, á bls. 9 í nefndaráliti meiri hlutans er þetta ávarpað. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli og það erum við hv. þingmaður og nefndarmaður í fjárlaganefnd síðustu ára sammála um, við verðum að gera það. Ég er náttúrlega hér á mínu fyrsta ári og mér hefur þótt þetta vera ofboðslega áhugavert að sitja í fjárlaganefnd. Þetta er alveg rétt sem hann nefnir, það eru alveg gríðarlega mikið af upplýsingum sem fara í gegnum fjárlaganefnd og maður er bara að reyna að ná utan um allar þær upplýsingar. En það er alveg hárrétt að uppgjör Íbúðalánasjóðs og sala Íslandsbanka skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli og þessir 90 milljarðar sem við fengum fyrir Íslandsbanka fara náttúrlega í það að borga niður skuldir. Það mun hjálpa okkur og það var eitt af því sem breytti fjármálaáætluninni frá upphaflegri framlagningu hennar.
Vaxtajöfnuður, það er gott að hafa það á bak við eyrað, að fylgjast vel með hvernig hann er að þróast og ég þakka hv. þingmanni fyrir þá góðu ábendingu.