156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:49]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða og málefnalega ræðu og mjög margt gott sem kom fram í máli hv. þingmanns. Hún nefnir réttilega og þannig er það almennt að samstarf hv. þingmanna er gott þó að við séum ósammála um ýmislegt og ég er sammála hv. þingmanni um að það er mjög mikilvægt að við vinnum saman að því að ná settu marki þó að við munum örugglega vera ósammála um einhverja hluti, sem er allt í lagi og eðlilegt. En mér finnst hins vegar aðeins vanta upp á og áhyggjur mínar eru þessar, virðulegi forseti: Hv. þingmaður nefnir réttilega að hv. efnahags- og viðskiptanefnd nefni í nefndarálitinu víxlverkunarfrumvarpið, þó að ég sé ósammála varðandi það þá er meiri hluti í þinginu sem vill fara fram með það og koma með jöfnunarframlag. Þarna eru 4 milljarðar og harla ólíklegt að það verði eitthvað annað en 4 milljarðar á ári. Ef við segjum bara 4 milljarðar þá ertu í rauninni búinn að taka afganginn, það er enginn afgangur 2027, þú ert búinn að taka afganginn 2028 og það er svona næfurþunnt 2029 og 2030. Síðan ef við tökum það sem er búið að ákveða og varnarmálin, gefum okkur að það sé bara 10% á ári og það sé í tíu ár, þá er allur afgangurinn auðveldlega farinn. Síðan er ýmislegt annað og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson vísaði í minnisblað fjármálaráðuneytisins út af launaþróun og vísitölu og það er ýmislegt annað þarna sem manni finnst vanta. Ég spyr hv. þingmann hvort hún hafi áhyggjur af þessu.

Sömuleiðis, af því hv. þingmaður nefndi framhaldsskólann, þá er að koma inn metfjöldi nemanda en á sama tíma á að draga niður framlög í rekstur framhaldsskóla á tímabilinu. Nú vona ég að það séu einhverjar leiðir sem eru þess eðlis að við getum kennt öllum þessum krökkum, það er biðlisti sérstaklega eftir iðnnáminu. En þegar maður fer (Forseti hringir.) í gegnum fjármálaáætlun þá sér maður engar lausnir í því að ná þessu fram. Ég spyr hv. þingmann hvort hún hafi ekki áhyggjur af þessum þætti.