156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:51]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir mjög góða fyrirspurn. Ég held að það sé nú hlutverk okkar að hafa áhyggjur af fjármálunum og okkur ber að gera það. Hann nefndi hér aðeins jöfnunarframlög vegna víxlverkunarfrumvarps fjármála- og efnahagsráðherra vegna lífeyrissjóðanna. Maður þarf einhvern veginn að horfa á stóru myndina í því. Við erum að setja 18 milljarða kr. í örorkukerfið. Ef við gerum ekkert þá fá öryrkjar ekki þessar réttarbætur sem fyrri ríkisstjórn ætlaði sér að tryggja þeim. Ef við gerum ekkert þá munu útgjöld ríkissjóðs aukast um 2 milljarða og greiðslur lífeyrissjóðanna til til sinna sjóðfélaga eða örorkuþega, þeirra útgjöld er kannski réttara að segja, munu lækka og það var ekki hugmyndin að með því að bæta almannatryggingakerfið myndu útgjöld lífeyrissjóða lækka. Það var ekki hugmyndin heldur miklu frekar að tryggja örorkuþegum betra líf og betri lífsafkomu. Eitthvað verðum við að gera og það var alveg skýrt á öllum umsögnum í málinu að lífeyrissjóðirnir hafa auðvitað áhyggjur af jöfnunarframlaginu þannig að það þarf að finna út úr því. Í sumar kemur væntanlega ný þjóðhagsspá og þá fara allar tölur á flug þannig að það er auðvitað bara óvissa. Það er alveg skýrt hvað mig varðar að ef við erum að auka tekjur þurfum við að draga saman á móti. Það er bara þannig og það er verkefni okkar að finna út úr því.

Ég fæ kannski að koma að framhaldsskólunum í seinna andsvari því að ég sé að ég er að renna út á tíma.