fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þarf kannski ekki að vera alveg sammála túlkun hv. þingmanns þegar kemur að örorkumálunum. Það liggur alveg fyrir í umsögnum og er náttúrlega frekar augljóst að þetta mun skerða lífeyrisgreiðslur til þeirra lífeyrisþega sem minnstar tekjur hafa ef þetta víxlverkunarfrumvarp fer fram. En látum það liggja milli hluta, það er efni í umræðu sem við þurfum að taka. En það sem ég er að vekja athygli á hér, virðulegur forseti, af því að hv. þingmaður bendir réttilega á að við verðum að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum af ástæðum sem ég ætla ekki að nefna, það er svo augljóst, er að nú liggur það fyrir að ríkisstjórnin er búin að ákveða að auka útgjöldin. Það gerir að verkum að jafnvægi næst ekki. Það er jöfnunarframlagið, sem samt er bara lítið brot af þessu, það eru varnarmálin og það eru aðrir þættir sem eru vanáætlaðir. En látum það liggja á milli hluta, þá er ég að vísa í launaþróunar- og verðlagsvísitölutengingarnar. En gefum okkur að það sé í lagi, allar forsendur séu í lagi. En þá liggur alveg fyrir að bara þessar tvær ákvarðanir sem hv. þingmaður fór mjög gaumgæfilega yfir gera það að verkum að það næst ekki jafnvægi. Auðvitað er það þannig að það breytast forsendur. En við verðum að gera eins góðar áætlanir og hægt er og hér er meiri hlutinn að sýna afkomu sem stenst ekki vegna eigin ákvarðana meiri hlutans. Það liggur bara fyrir. Jöfnunarframlagið hreinsar upp afganginn 2028 og gerir hann næfurþunnan 2029. En jafnvel þó að við værum ekki að gera þetta svona jafnt og þétt og tækjum þetta á seinni hlutanum, að því gefnu að menn setji eitthvað í varnarmálin, (Forseti hringir.) þá er líka afgangur farinn 2029 og 2030. Miðað við bara svona jafnt framlag þá er hann alveg fullkomlega farinn. Þá spyr maður sig: (Forseti hringir.) Þegar menn vita að þessar forsendur standast ekki, af hverju halda menn sig við niðurstöðutölur sem við vitum að ganga ekki upp?