156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:56]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil enn og aftur þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar og vangaveltur. Varðandi jöfnunarframlagið þá hef ég alveg skilning á því sjónarmiði ráðuneytisins að það er voða erfitt að setja inn einhverja tölu sem við vitum ekki hver verður. Það þarf að semja um hana þannig að það er kannski ekki skynsamlegt að setja inn 4 milljarða eins og er í gömlu fjárlögunum þegar við vitum ekki hvað verður. Það var gerð náttúrlega gríðarlega mikilvæg breyting síðast þegar tryggt var að jöfnunarframlagið færi til þeirra sjóða sem hafa háa örorkubyrði. Hér áður fyrir var þetta bara sett á alla og það var nú frekar óskynsamlegt að gera það. Núna verður þetta sett til þeirra sjóða sem hafa hæstu örorkubyrðina og það er bara sanngirnismál. Þetta jöfnunarframlag mun líka hafa þau áhrif, hvað varðar þessar áhyggjur sem hv. þingmaður hefur að það þurfi að skerða greiðslur til ellilífeyrisþega — það mun auðvitað líka taka á þeim áhyggjum og ég skil alveg að fólk hafi áhyggjur af því.

Hér áðan ræddi hv. þingmaður framhaldsskólana og ég held að við ættum að gefa okkur meiri tíma til að ræða það einmitt í fjárlögum í haust. En það kemur einmitt fram í nefndarálitinu að það er auðvitað einhver fækkun framhaldsskólanema sem veldur þessu. Þetta er ekki það að ríkisstjórnin eða mennta- og barnamálaráðuneytið ætli að fara að skera niður, þetta fer bara eftir fjölda nemenda, það útskýrir þetta. En ég er alveg sammála hv. þingmanni og það er auðvitað sameiginlegt verkefni okkar, stöðugleiki í ríkisfjármálum, hann skiptir okkur öllu máli enda er það fyrsta málið í stefnuyfirlýsingu þessarar ríkisstjórnar að það skuli ná fram stöðugleika í ríkisfjármálunum. Það þarf enginn að efast um að við vinnum öll að því og ég bara óska eftir liðsinni hv. þingmanns í þeirri vegferð okkar (Forseti hringir.) og ég veit að hann mun standa með okkur í því.