veiðigjald.
Herra forseti. Ég var í síðustu ræðu að fara yfir umsögn Ragnars Árnasonar, prófessors í fiskihagfræði, þar sem hann útskýrði á afskaplega skiljanlegu máli viðmiðunarverð sem ætlunin er að nota í þessu nýja frumvarpi varðandi aflaverðmæti makríls þar sem á að miða við verð á makríl í Noregi, þ.e. álagning veiðigjaldsins á að miða við verðlagningu á mörkuðum í Noregi og ákvarðanir fiskistofu Noregs hvað varðar verðmæti afla á íslenskum fiskiskipum. Hann útskýrði í stuttu máli í sinni umsögn, sem ég fór yfir í síðustu ræðu, muninn á þessu tvennu sem væri afskaplega mikill og það væru til dæmi um það að íslensk fiskiskip sem höfðu selt í Noregi hefðu fengið 50% minna verðmæti fyrir aflann heldur en norsku skipin fyrir sinn makrílafla af ástæðum sem hann fór mjög vel yfir. Síðan fer hann yfir í sinni umsögn muninn á verði á innlendum fiskmörkuðum og þeim afla sem landað er til vinnslna. Með leyfi herra forseta ætla ég að lesa upp úr umsögn Ragnars Árnasonar hvað þetta atriði varðar:
„Fiskafli á innlendum fiskmörkuðum er ekki heldur sama vara og afla sem landað er til vinnslustöðvar samkvæmt samningi eða í beinum viðskiptum.
Kaup á fiski á fiskmörkuðum er fyrir fisk sem þegar hefur verið landað og komið á handhægan stað. Þau eru jafnan fyrir kaup á tilteknu litlu magni af fiski af ákveðinni tegund, oft í vissu flokkuðu formi í handhægum umbúðum. Þá er fiskur á fiskmörkuðum oftast nýlega veiddur og sérvalinn af kaupanda, sem kaupir á þeim tímum sem honum hentar.
Vinnslustöð sem tekur við fiski úr veiðiskipi samkvæmt samningi eða í beinum viðskiptum ræður hins vegar ekki magninu, sem er yfirleitt mörgum sinnum meira en einstök kaup á fiskmörkuðum. Aflinn er að jafnaði talsvert eldri en fiskur á fiskmörkuðum og gæðin að sama skapi lakari. Vinnslustöðin kaupir aflann í heild og getur ekki valið hagstæðasta magn, eða eftir gæðum, tegundum og verður sjálf að sjá um löndunina. Vinnslustöðin verður jafnframt að taka við afla veiðiskipsins allt árið, jafnvel á árstímum sem eru henni óhagstæðir.
Því er augljóst að hér er alls ekki um sömu vörur að ræða. Annars vegar er um ósérgreind magnkaup á eldri fiski að ræða, hins vegar eru sérgreind smákaup þar sem kaupandinn velur nákvæmlega það sem hann vill. Rétt hagræn verð eru því mismunandi. Verð á fiski til vinnslustöðvar hlýtur að vera lægra en verð á fiskmörkuðum. Eins spurningin er hversu miklu lægra.
Það eru því hrein öfugmæli að í því felist einhver leiðrétting að setja verð á lönduðum fiski í Noregi og verð á innlendum fiskmörkuðum í stað gildandi verða til vinnslustöðvar á Íslandi.
Hvað áhrifin á sjávarútvegsfyrirtækin snertir er aðalatriðið hins vegar ekki hvernig veiðigjaldið er reiknað út eða hvað það er kallað. Það sem mestu máli skiptir er sú fjárupphæð sem ríkið tekur af fyrirtækjunum. Þessi upphæð er að sjálfsögðu skattur. Veiðigjöld, hvernig svo sem þau eru réttlætt, útskýrð eða reiknuð út eru ekki viðskiptasamningur jafnsettra aðila. Þau eru því ekki greiðsla fyrir umbeðna þjónustu. Þau eru álögð og innheimt með valdi og eina leiðin til að forðast þau er að hætta fiskveiðum. Þetta er nákvæmlega skýrgreiningin á sköttum samkvæmt Oxford Dictionary […]
Veiðigjald er langt frá því að vera efnahagslega skaðlaust eða jafnvel skaðlítið.“ — Eins og oft er haldið fram. — „Vegna þess að það leggst sérstaklega á atvinnuveg sem á í harðri samkeppni við erlenda atvinnuvegi er það sennilega miklu skaðlegra fyrir íslenskt efnahagslíf en aðrir almennari skattar, t.d. tekjuskattur, svo ekki sé minnst á neysluskatta. “
Þarna fer Ragnar Árnason vel yfir muninn á því hvort það eigi að miða við verð á fiskmörkuðum hvað varðar allan fisk og álagningu veiðigjalds á allan fisk og það sé grunnur að veiðigjaldinu að miða við verð á mörkuðum. Á þessu er geysilega mikill munur, eins og Ragnar hefur farið yfir, bæði hvað varðar magn og hvernig þetta er afhent, landað og í hvaða formi þetta er. Yfirleitt er um lítið magn að ræða og því er eðlilegt samkvæmt markaðslögmálum að verðið sé hærra.