156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[10:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði nú bara að gera þingheimi grein fyrir því að þetta mál mun fara til efnahags- og viðskiptanefndar núna milli umræðna vegna þess að það þarf að gera ákveðnar breytingar vegna dagsetninga. Þessi lög áttu að taka gildi 1. júlí og í dag er 4. júlí eins og margir vita og hv. formaður Framsóknarflokksins benti mér réttilega á hérna rétt áður en við gengum í salinn þannig að við þurfum að taka þetta inn og það mun leiða af sér alls konar lagatæknilegar breytingar en enga efnislega breytingu á frumvarpinu.

Svo það sé líka upplýst hér þá höfum við nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd verið að ræða fjarvarmaveitur og hvort ætti að undanskilja þær frá greiðslu á jöfnunargjaldi. Það skiptir verulega miklu máli fyrir fjarvarmaveitur, t.d. í Vestmannaeyjum, á Seyðisfirði, í Bolungarvík, Vesturbyggð og á Ísafirði og ég hef skilið það á samtölum mínum við nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd að það sé góð sátt um það mál og við munum klára það saman. Ég er alla vega í góðri trú með það.