156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[10:04]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Það er rétt, það er 4. júlí í dag og eðlilegt að ýmislegt þurfi þar af leiðandi að koma til skoðunar hérna í þingstörfunum. Í þessu máli, sem er einhvers konar bandormur, eru fjölmargir þættir sem er verið að taka hér tillit til eða að fara að fjalla um og í ræðu minni fyrr í ferlinu þá fór ég nokkuð ítarlega yfir málið. Í nefndaráliti minni hlutans er bent á nokkra hluti sem ég hvet nefndina til að skoða þar sem málið fer aftur til nefndarinnar á milli umræðna, ekki síst um ábendingar um réttaróvissu og ójöfnuð vegna athugasemda sem komu frá lagasviði Deloitte um endurupptöku skattamála, sem getur verið jákvætt mál. En það þarf að vera ákveðið jafnræði gagnvart fólkinu í landinu líka, að það sé það sem geti kallað eftir endurupptöku ef Skatturinn hefur farið offari, ekki bara að Skatturinn uppgötvi það sjálfur. Auðvitað getur hann farið offari og áttað sig á því og komið til baka. En maður hefur meiri grun um að hann sé kannski að horfa frekar í hina áttina, að hann hafi gleymt einhverju og komi þá með endurupptöku á fólk og fyrirtæki.

Það var líka fjallað dálítið ítarlega, og reyndar í nefndaráliti meiri hlutans, um breytingar á tollalögunum. Ég hvet nefndina til að skoða það. Síðan heyrðist mér í umræðunni hér um daginn vera talsverður samhljómur um þennan hluta um jöfnun raforku, um flutningskostnaðinn. Ég ætlaði bara að hafa nokkur orð uppi um það hér. Við höfum, alla vega allt frá ríkisstjórninni sem sat 2013–2016, verið með það markmið að jafna flutningskostnað og við höfum gert það, að ég held, þrisvar sinnum og talið að við séum búin að ná þeim jöfnuði er varðar húshitunarkostnaðinn sérstaklega. Út af hafa vissulega staðið stofnanir og fyrirtæki, stofnanir sveitarfélaga eins og skólar, jafnvel sundlaugar, og við höfum verið smátt og smátt að laga þetta. En í hvert sinn sem þingið hefur jafnað þennan kostnað þá hafa dreififyrirtækin komið og hækkað gjaldskrá í dreifbýli langt umfram dreifikostnaðinn í þéttbýli og búið til nýtt gap. Þetta er auðvitað ömurlegt fyrir okkur sem erum kjörnir fulltrúar sem erum búin að lofa því að jafna þennan flutningskostnað, búin að ná því, fara út í samfélagið og verða býsna stolt af verkum okkar og fá það beint framan í okkur að það hafi ekki tekist og það byrji aftur að vaxa. Þess vegna höfum við gert þetta þrisvar. Þess vegna er ég að benda á að sú leið sem við erum að fara er háð því að þetta gangi upp, sem sagt að flutningskostnaðurinn haldi ekki áfram af hálfu dreififyrirtækjanna að verða munur á dreifbýli og þéttbýli.

Þess vegna þurfum við að íhuga hvort það séu ekki einfaldlega skynsamlegri einfaldari leiðir. Við í Framsókn höfum t.d. oft bent á að það sé eðlilegt, þar sem um sameiginlega auðlind okkar er að ræða, þó að hún geti auðvitað í einhverjum tilvikum nýtingar verið háð einkaréttarlegum ákvæðum, að Ísland sé einfaldlega eitt gjaldsvæði þegar kemur að dreifingu á auðlind. Það er sérstaklega fáránlegt að í langflestum tilvikum þá verður orkan til, auðlindin til, í dreifbýli, þar koma þau áhrif fram sem geta verið af völdum virkjananna, þ.e. umhverfi, ásýnd, land fer undir vatn, vindmyllur eða hvað það nú er, jarðvarmavirkjanir, ásýnd þeirra, síðan er orkan seld frá þessu svæði og svo er gjaldskráin búin til eins og hún hafi orðið til hér í Reykjavík og fólkið sem býr við hliðina á virkjuninni borgar umtalsvert meira fyrir dreifinguna, sem er við hliðina á því, heldur en fólkið sem býr mjög langt frá í þéttbýli. Þetta hljómar heimskulega og eina leiðin til að koma algjörlega í veg fyrir þetta væri að segja að á Íslandi sé einfaldlega ein gjaldskrá fyrir dreifingu rafmagns. Það myndi þýða einhverja lítils háttar hækkun í dreifbýli. 5,2% þjóðarinnar búa í dreifbýli. Hinir búa í þéttbýli. Þessi 5,2% þurfa að sæta því að borga umtalsvert meira fyrir dreifingu á raforku sem verður til í bakgarðinum hjá þeim. Þetta væri magnað verk að fara í og myndi tryggja jöfnun fyrir alla landsmenn, sama hvar þeir búa. Ég geri mér grein fyrir því að það myndi hugsanlega þurfa lengri aðdraganda að þessari breytingu heldur en hægt er að gera þegar við erum stödd hérna 4. júlí en þetta er verk sem við eigum að vinna því þarna myndum við tryggja fullkomna jöfnun.

Svo tek ég undir það sem hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir kom hérna upp og fjallaði um, jöfnunargjald á fjarvarmaveitur. Fjarvarmaveitur eru auðvitað tilraun okkar til þess — og við, ríkisvaldið höfum verið að styðja við í gegnum tíðina — að jafna einmitt þennan mun milli þeirra sem búa við það að hafa heitt vatn og þeirra sem geta ekki átt heitt vatn til að hita upp húsin sín. Við erum í einstakri stöðu hér á Íslandi með yfir 90% þjóðarinnar sem hita upp húsin sín með heitu vatni, með endurnýjanlegri orku. Þetta er gríðarleg orka. Við erum sú þjóð í heiminum sem er komin langsamlega lengst í þessari loftslagsaðgerð, þessum hluta orkuskipta, og það er bara skylda okkar sem erum hérna inni að horfa á þessi innan við 10%, hvernig við getum tryggt jöfnun þeirra. Ein leið er auðvitað að halda áfram að búa til svona plástra, sem ég hvet nefndina til að gera þegar við erum stödd hérna 4. júlí og erum ekki komin lengra í alvöruleiðréttingunni, en við eigum að horfa á alvöruleiðréttinguna einnig. — Ég hef lokið máli mínu.