breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni og hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur varðandi mikilvægi þess að breyta þættinum sem snýr að jöfnunargjaldinu fyrir fjarvarmaveiturnar og sömuleiðis að leita allra leiða til að jafna þennan aðstöðumun. Í því samhengi liggur alveg fyrir að miðað við fjárfestingar sem eru fram undan í dreifikerfi, t.d. vegna orkuskipta — það er verið að leggja heimtaugar og annað sem óhjákvæmilega mun þýða meiri fjárfestingar hjá dreifiveitunum — og við erum sömuleiðis að sjá það sama þegar við horfum á flutningskerfi, við erum að sjá það að nýjar fjárfestingar þýða að það er í raun og veru þensluhvati á því að vera að hækka gjaldskrár. Mig langar þess vegna til að hvetja nefndina — auðvitað erum við hér að vinna ákveðnar breytingar fyrir þinglok — til dáða í því að fá Raforkueftirlitið til að ráðast í sérstaka greiningu á því hvernig hægt er að takmarka þessi áhrif svo við séum ekki að lenda í þessari hringrás sem formaður Framsóknar, hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson, ræddi hér áðan. Ég hvet ykkur til að ráðast í slíka greiningu og hún verði þá grunnurinn að því að við getum tekið ákvarðanir í kjölfarið. Síðan vona ég að við getum lokið þessu máli fljótt og vel og komist inn í vinnuna við að undirbúa haustið.