fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans ræðu. Mig langar að fá að nefna það að í nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar er komið inn á þessa annmarka á þessari áætlun. Hér hefur hæstv. forsætisráðherra talað um og einnig hæstv. fjármálaráðherra að hér sé verið að vinna eftir nýju verklagi sem hafi átt að auka skýrleika, traust og annað, það sé verið að taka upp önnur vinnubrögð, á meðan við í minni hlutanum höfum kvartað yfir skorti á gagnsæi. Síðan gerist það að fjármálaráð var mjög gagnrýnið á þessa framsetningu ríkisstjórnarinnar og ráðið talaði um og benti á, rétt eins og við í minni hlutanum höfum gert, að hér skorti á skýrleika, upplýsingum væri ábótavant og engar raungreiningar. Fjármálaráð sagði sömuleiðis að það væri erfitt að sjá heildarniðurstöðu út úr þessu plaggi. Mig langar því að spyrja hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson hvaða skoðun hann hefur á því.
Mig langar líka að fá að spyrja hv. þingmann um það að hér hafa forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna talað mikið um erfiða stöðu og hvað þau séu búin að vera í vonlausri stöðu að taka hér við. En samt sem áður segir á bls. 24 orðrétt, með leyfi forseta, að íslenskt efnahagslíf „standi sterkt að vígi“ og svo segir að undirliggjandi þróttur sé ágætur. Ég vil fá að spyrja hv. þingmann: Hverju sætir þetta væl þegar það er alveg augljóst að fyrri ríkisstjórn skilaði þeim góðu búi?