Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:29]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að spyrja mig einmitt um þessa annmarka því eins og sést hérna á blaðinu mínu þá var ég búinn að grænstrika alla annmarkana og þetta átti að vera hluti af því sem ég ætlaði að fjalla um í ræðu minni en ég varð að ýta frá til að koma öllu öðru að. Það eru þarna fjölmörg atriði sem minni hlutinn bendir á og þau hafa samhljóm við það sem fjármálaráð er að gagnrýna. Það sem ég var að segja í minni ræðu er að fyrir vikið skortir trúverðugleika. Trúverðugleiki er það mikilvægasta sem á að birtast í fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Þetta gildir um það að markmið fjármálaáætlunar séu einhvers staðar birt á einhverri vefsíðu úti í bæ og fylgi ekki fjármálaáætluninni og ekki borið saman, það er boðuð veik og óljós stöðugleikaregla, það liggja engar upplýsingar fyrir um markmið og mælikvarða, eins og ég nefndi, engar upplýsingar um boðuð hagræðingaráform eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu. Það er óljóst hvernig á að fara með verulega fjármögnun meiri háttar útgjalda til varnarmála og sitthvað. Þetta dregur úr gagnsæi og trúverðugleika áætlunarinnar, ég ætla bara að segja það alveg eins og er.

Varðandi seinni spurninguna þá finnst mér að í meirihlutaálitinu þá sé bara ríkisstjórnin að viðurkenna að staðan sé góð. Ég hef haldið því fram í mörg ár að við séum — okkur tókst að byggja upp og sýndum fram á að við hefðum byggt upp áfallaþol, þoldum það að fara í gegnum Covid sem var gríðarlegt álag á öll kerfi allra þjóða. Við sýndum fram á það að við vorum kannski sú þjóð sem einna hraðast komst upp úr því og náði fyrri stöðu. Tækifærin á Íslandi eru gríðarlega góð svo fremi að menn hafi skilning á því að atvinnulífið geti þroskast og þróast. Ég ætla að halda því fram að ríkisstjórnarflokkarnir, sem þá voru í minni hluta, hafi stundað blekkingar í aðdraganda kosninga. Ég ætla að taka svo sterkt til orða. Þau héldu því áfram allt fram til þess dags að þau tóku við. Síðan fengu þau upplýsingar um að svo er ekki. Og hér í meirihlutaáliti fjárlaganefndar þeirra flokka, þá staðfesta þau það að staðan er góð (Forseti hringir.) á Íslandi og ágætt að vitna til þessarar setningar á bls. 24. Staðan er góð og við getum verið bjartsýn, svo fremi sem ríkisstjórnin klúðri þessu ekki, forseti.