156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

hækkun hámarksútsvars og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

[13:03]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Þetta er einmitt eitt af þeim frumvörpum sem við eigum eftir að afgreiða hér í þinginu og um er að ræða löngu tímabærar breytingar á jöfnunarsjóði, umbætur og kerfisbreytingar. Þetta er eitthvað sem var rætt hér m.a. á síðasta þingi og hefur lengi verið til umræðu í rauninni, fjárhagsskipulag sveitarfélaga. Við skulum ekki láta eins og það sé ný umræða. Það liggur alveg fyrir að það er fjöldinn allur af málaflokkum sem hefur færst yfir til sveitarfélaganna á síðustu árum sem hefur verið vanfjármagnaður og þetta er eitthvað sem þessi ríkisstjórn hefur m.a. verið að breyta með ákveðnum samningum við sveitarfélögin. Hér er verið að vitna til þess að það sé verið að gera, já, breytingar í nafni jöfnunar vegna þess að það er eðlismunur á ákveðnum tegundum sveitarfélaga þegar kemur að þeirri þjónustu sem þau veita, hvort þau séu fjölkjarnasveitarfélög t.d. eða ekki, og hvernig kostnaður fellur til. Það er auðvitað til umræðu enn þá á þessum síðustu lokametrum hvernig útfærslan verður, en ég ætla að leyfa mér að fullyrða að umrædd skattahækkun sem hér er verið að tala um er ekki jafn umfangsmikil og oft hefur verið haldið fram. Það er heldur ekki sjálfgefið, og ég ætla bara að fullyrða það, að sveitarfélög fái niðurgreiðslur úr jöfnunarsjóði ef þau eru ekki að nýta hámarksútsvar. Það er mín skoðun og hefur verið mín skoðun. Þetta er ekki grundvallarbreyting á stöðu einstakra heimila, þessi breyting á jöfnunarbyrði. Það sem ég hef meiri áhyggjur af í dag og ætla bara að koma hérna að að fyrra bragði er verðbólgustaðan og þá möguleg þróun vaxta hér á landi. Ef við horfum á heimilin í landinu þá er þetta það sem er líklega að fara að bitna hvað mest á þeim, ekki þessar breytingar sem um ræðir hér er snúa að jöfnunarsjóði.