156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

hækkun hámarksútsvars og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

[13:05]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið og vil ítreka það að ég deili með henni áhyggjum af stöðu verðbólgunnar í landinu og vaxtalækkunarferlinu sem hefur líklega stöðvast núna. En ég vil fara aftur að frumvarpi innviðaráðherra um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem mun þvinga sveitarfélögin til að hækka útsvar á tugþúsundir heimila. Ef sveitarfélag nýtir ekki heimild sína til hámarksútsvars skerðir ríkið framlög þess þvert á stjórnarskrárvarinn rétt þeirra til sjálfstæðra ákvarðana. Þetta er ekkert annað en refsing, refsing sem eykur skattbyrði 84.000 manns um land allt í boði ríkisstjórnar sem undirritaði stjórnarsáttmála þar sem sérstaklega var tekið fram að skattar á almenning ættu ekki að hækka. Auk þess er hér verið að senda mjög hættuleg skilaboð; að sveitarfélög sem sýni ráðdeild og ábyrgð eigi von á skerðingum. Hver er þá hvatinn til að standa vel að fjármálum? Því spyr ég aftur hæstv. forsætisráðherra: (Forseti hringir.) Telur hún að þessi vinnubrögð að fela skattahækkanir í flóknum kerfum og þvinga sveitarfélög til að hækka álögur samrýmist heiðarlegri (Forseti hringir.) og gagnsærri stjórnsýslu? Og hvað vill hún þá segja við þær 84.000 fjölskyldur sem nú þurfa að borga meira þvert á hennar eigin loforð?