hækkun hámarksútsvars og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Þetta er engin skattahækkun nema sveitarfélögin taki ákvörðun um hækka sitt útsvar. Það liggur alveg fyrir. Það er verið að leggja til breytingar á ákveðnum úthlutunarreglum. Það hefur reglulega verið gert í gegnum tíðina. Það hefur reglulega verið tekist á um það, hvort sem það snýr að grunnskólaframlagi, kostnaði vegna íslenskukennslu fyrir innflytjendur, hvernig stærð sveitarfélaga eða sameiningar sveitarfélaga hafa áhrif á framlög úr jöfnunarsjóði. Það er ekki nýtt af nálinni að það sé tekist á um breytingar þegar kemur að jöfnunarsjóðnum. Þetta er ekki skattahækkun í boði ríkisstjórnarinnar nema það sé ákveðið hjá þessum sveitarfélögum að bregðast við með þeim hætti að hækka sitt útsvar. Þetta snýst um að jafna búsetuskilyrði fólks í landinu, að það sé hægt að bjóða upp á sömu þjónustu alls staðar um land óháð því í hvaða sveitarfélagi þú býrð. Ég ítreka að fyrir mér er þetta útúrsnúningur að hér sé verið að þvinga fram skattahækkanir. Sveitarfélögum er í lófa lagið að bregðast við þessari stöðu sjálf með ákveðnum hætti og það er þeirra ákvörðun hvort þau breyta útsvarinu eða ekki.