156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

aðgerðir til að ná verðbólgumarkmiðum Seðlabankans.

[13:08]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Nýkomið er út mat Hagstofunnar á efnahagshorfum í júlíspá þar sem reiknað er með að vísitala neysluverðs hækki um 3,8% að meðaltali í ár og nálgist verðbólgumarkmið árið 2027. Nálgist er áhugavert orð í þessu samhengi. Það er ójafnvægi milli verðbólgu og vaxtar, hagvaxtar. Þegar verðbólga er töluvert hærri en hagvöxtur getur skapast spennuástand sem er óhagstætt fyrir bæði heimili og fyrirtæki. Hærri verðbólga leiðir nær alltaf til hækkunar stýrivaxta hjá Seðlabankanum og er líklegt að það stórhægi á vaxtalækkunarferlinu. Það veldur áframhaldandi háum fjármagnskostnaði fyrir bæði ríki, heimili og fyrirtæki. Það er erfiðara fyrir peningastefnuna að bregðast við. Langtímaáhrif á samkeppnishæfni ef viðvarandi verðbólga er hærri hér en í helstu viðskiptalöndum eru þau að það veikir samkeppnisstöðu þjóðarinnar. Aukin fjármagnskostnaður vegna verðbólgu og hærra vaxtaumhverfis leggur þunga byrði á ríkissjóð og skerðir svigrúm til verkefna. Munum hér að afkomumarkmið fjármálastefnu eru nánast í uppnámi nú þegar þó að það sé innan við mánuður frá því að þau voru samþykkt. Það virðist vera þörf á frekara aðhaldi og enn frekari hagræðingu í útgjaldaþróun. Við skulum líka muna að markmið um hallalausan ríkisrekstur árið 2027 er fallið brott og markmið 2028 er í hættu. Þetta getur haft áhrif á vinnumarkaðnum og við höfum því miður séð að verðbólguvæntingar á markaðnum eru að hækka, sem lýsir takmörkuðu trausti á efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar. Það er vandamál í sjálfu sér því að hækkaðar verðbólguvæntingar hafa áhrif á hegðun aðila á markaði.

Forsætisráðherra þarf núna að sýna í verki með hvaða hætti hún ætlar að ná niður verðbólgu og lækka vexti. Hér er stærsta hagsmunamál almennings og þjóðfélagsins. Við þurfum þjóðarsátt og sameiginlegan skilning á verkefninu. Við erum hér í upphafi nýs kjörtímabils og við hljótum að kalla eftir sameiginlegri sýn. Að koma vöxtum og verðlagi niður, það er verkefnið sem við eigum að einblína á og við í Framsókn erum tilbúin til að leggja okkar af mörkum til að það nái fram að ganga. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra hvort í gangi sé markvisst samtal, samráð aðila vinnumarkaðarins, (Forseti hringir.) Seðlabankans, sveitarfélaga og ríkisstjórnar um aðgerðir til að ná fram verðbólgumarkmiðum Seðlabankans, því að við virðumst eins og sakir standa vera að fjarlægjast þau markmið.