aðgerðir til að ná verðbólgumarkmiðum Seðlabankans.
Frú forseti. Þetta eru góðar og mikilvægar spurningar. Ég ítreka það sem ég sagði áðan í svari við fyrri fyrirspurn. Ég hef áhyggjur af þessu og ríkisstjórnin hefur áhyggjur af stöðu verðbólgu og stöðu vaxta í landinu. Við lítum þetta alvarlegum augum og ríkið mun gera það sem þarf til að halda aftur af verðbólgu. Við erum að sjá ákveðna þróun í innlendum þáttum verðbólgu sem er áhyggjuefni. Við erum að fylgjast mjög náið með þessu. Ég á í reglulegu samtali bæði við forsvarsmenn atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar um stöðu mála og þetta er án efa eitt af stærstu umræðuefnum sem við munum taka fyrir hér í haust og þegar við förum að ræða fjárlög. Við höfum sett okkur það pólitíska markmið — athugið, pólitískt, ekki teknókratískt eða kerfislegt heldur pólitískt markmið — að skila afkomu á núlli 2027. Ég sé að eftir breytingartillögur sem hafa verið unnar út af uppfærslu á fjármálaáætlun, er þetta dottið í mínus 1 milljarð, mínus 1, á meðan við vorum að eiga við tugi milljarða á undanförnum árum. Ég get fundið þennan 1 milljarð. Við munum finna þennan 1 milljarð og ef það þarf að finna fleiri milljarða þá mun ríkisstjórnin finna fleiri milljarða vegna þess að við erum búin að skuldbinda okkur til þess að senda skýr pólitísk skilaboð um að það muni ekki standa á ríkinu þegar kemur að því að halda aftur af verðbólgu. Þannig að við höldum vöku okkar og við höfum vissulega séð jákvæðar fréttir. Vextir hafa lækkað um 1,75% eftir að ríkisstjórnin tók við. Við erum með verðbólgu í kringum 4%. Mér finnst það ekki nógu lágt. Ég myndi vilja sjá enn þá lægri tölur. En það þýðir ekkert að kvarta undan því, við verðum að gera eitthvað í því og ég fagna því að hv. þingmaður veki athygli á þessu og hlakka til að eiga efnisríkt og virkt samstarf og samtal um þetta hérna í haust.