aðgerðir til að ná verðbólgumarkmiðum Seðlabankans.
Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Við munum finna fleiri milljarða. Eru skilaboðin: Við ætlum að hækka skatta enn frekar? Eða eru skilaboðin: Við ætlum að fara í enn frekara aðhald, niðurskurð? Mínus 1, sagði hæstv. ráðherra. Já, það er eftir að búið er að taka 3 milljarða úr varasjóðnum þannig að þeir voru mínus 4. Munurinn er ekki svo mikill. Lækkunin á verðbólgunni var satt best að segja talsvert hraðari í tíð síðustu ríkisstjórnar og hefur síðan aðeins dregið úr, svona eftir 100 daga ríkisstjórnarinnar.
Það er ágætt að hafa pólitískt markmið. Það er betra að sýna það í verki. Ég hef áhyggjur af því að hæstv. ráðherra sagði í tvígang í svari við fyrirspurn minni að þetta myndum við skoða í haust. Ég held að það sé ekki eftir neinu að bíða. Ég ætla því að ítreka að lokum spurningu mína, hvort hæstv. forsætisráðherra hyggist kalla saman aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélögin, Seðlabankann, til þess að taka samtalið (Forseti hringir.) um hvaða aðgerða við getum gripið til núna.