sala Íslandsbanka.
Herra forseti. Segja má að útboðið á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hafi gengið vel, a.m.k. hvað varðar áhuga almennings á hlut í bankanum. Fór svo að útboðið var stækkað og seldist allur eftirstandandi hlutur ríkisins í bankanum og í dag eru nær 10% þjóðarinnar hluthafar í Íslandsbanka. Það er auðvitað fagnaðarefni að tekist hafi að losa um allan eignarhlut ríkisins og stórminnkað þannig umsvif ríkisins á bankamarkaði. Fullt tilefni er til að hæstv. ríkisstjórn íhugi að selja hlut sinn í Landsbankanum í kjölfarið. Ekki veitir af að losað verði um þá fjármuni sem þar eru bundnir. Ríkisstjórnin er augljóslega í stökustu vandræðum með að tryggja borð fyrir báru í ríkisrekstrinum um þessar mundir og við heyrðum hæstv. forsætisráðherra hér rétt áðan segja að fundnir verði fleiri milljarðar. Boðaður afgangur af rekstri ríkissjóðs árið 2027 er fyrir bí og niðurgreiðsla skulda er ekki í forgangi. Slík er útgjaldagleðin, virðist vera, herra forseti. Ekki að ég leggi til að Landsbankinn verði seldur til að fjármagna frekari útgjöld, alls ekki, þvert á móti ætti að verja af afrakstrinum í niðurgreiðslu skulda.
En á þessum nótum, herra forseti, vakti sérstaka athygli mína á mánudag við útgáfu ríkisreiknings að þar er bókfært 10 milljarða sölutap vegna sölunnar á Íslandsbanka. Þykir mér rétt að leita skýringa hæstv. fjármálaráðherra á því hvernig svo standi á.