fjárveitingar til umferðaröryggismála.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir fyrirspurnina. Umferðaröryggi er eitt helsta mál vegakerfisins, að sjá til þess að það sé öruggt. Ég vil benda þingheimi á að náðst hefur alveg gríðarlega góður árangur á síðustu árum og áratugum hvað varðar banaslys í umferðinni, svo dæmi séu nefnd. Ég hef flutt það mál t.d. erlendis, bæði á vettvangi Evrópska efnahagssvæðisins og líka á ráðstefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, um þann mikla árangur sem við höfum náð. Við erum t.d. með svartblettagreiningu svokallaða þar sem er farið í aðgerðir þar sem er mikið um slys, mikil hætta á slysum, og þar er farið í aðgerðir til að bæta öryggi. Þetta hefur skilað miklum árangri. Þetta hefur verið í forgangi hjá Vegagerðinni um árabil. Að sjálfsögðu er þetta gríðarlega mikilvægt og hv. þingmaður fór vel yfir þetta varðandi hraðakstur, það er eitt helsta hættumálið, og líka einbreiðar brýr. Það er átak í gangi hjá Vegagerðinni að fækka einbreiðum brúm og við höldum áfram í því bæði á hringveginum og öðrum landshlutum. Það er bara unnið eftir ákveðnu skipulagi þar varðandi útboð og annað slíkt og væri gott að geta sett enn þá meiri pening hvað það varðar. Þeim er að fækka, einbreiðu brúnum.
Varðandi hringtorg þá er líka mikilvægt að halda áfram uppbyggingu á þeim. Ég veit um mikilvægi þess að það verði byggt hringtorg þegar komið er yfir Eyjafjörðinn, ég man ekki alveg hvað gatnamótin heita en það er gríðarlega mikilvægt að þar komi hringtorg hið fyrsta. Það eru mjög hættuleg T-gatnamót. Þetta er rétt hjá vinsælum ferðamannastað og ég vonast til þess að við getum hafið framkvæmdir þar fljótlega. Ég get ekki sagt hvaða ár það verður en fljótlega.