156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

fjárveitingar til umferðaröryggismála.

[13:25]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hann kom einmitt inn á hringtorgið við Eyjafjarðarbrautina sem er afar mikilvægt því að umferðin þar er að þyngjast mjög hratt og ég veit líka að í Hörgársveit er þörf fyrir hringtorg.

Virðulegur forseti. Nýverið sendi Vegagerðin erindi til Akureyrarbæjar þar sem bent var á að rauðu hjörtun í umferðarljósunum væru ekki samkvæmt reglum um umferðarmerki og umferðaröryggi. Það er auðvitað mikilvægt að við tökum öllum ábendingum um öryggi alvarlega því að ljós og merki þurfa auðvitað að vera skýr. Það sem hins vegar vekur upp spurningar er að ljósin hafa verið með þessum hætti frá árinu 2008, í 17 ár. Þau voru sett upp þegar miklir erfiðleikar voru í samfélaginu vegna fjármálahrunsins og það þótti þörf á að smita jákvæðni og bjartsýni til íbúa. Þessi hjörtu hafa vakið athygli út fyrir landsteinana og skipa veit ég stóran sess í huga Akureyringa. Ég veit að Vegagerðinni ber auðvitað að huga að umferðaröryggi og ég hef fullan skilning á því. En maður veltir því hins vegar fyrir sér þegar verið er að bera saman hjörtun og t.d. beygjuörvarnar að þá getur það jafnvel verið svo að beygjuörvarnar séu óskýrari en hjörtun (Forseti hringir.) í umferðarljósunum á Akureyri.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hver afstaða hans er til notkunar hjartatáknmyndarinnar í umferðarljósunum, (Forseti hringir.) hvort hann telji slíkt vera jákvætt innlegg í umferðaröryggisvitund eða hvort það sé alfarið óásættanlegt. Og ef hann er jákvæður, er hann tilbúinn (Forseti hringir.) til að leggjast á árarnar með okkur til að halda þessu óbreyttu?