endurskoðun reglna um smásölu áfengis.
Virðulegur forseti. Mér þætti freistandi að beina þeirri spurningu til hæstv. forsætisráðherra sem innheimtumanns ríkissjóðs hvort hann væri búinn að fá nöfnin á fjölskyldunum fjórum sem hæstv. forsætisráðherra hefur upplýst okkur um að greiði veiðigjaldið. En ég tel kannski að það væri að æra óstöðugan að spilla þessari notalegu stund sem við eigum hér með hæstv. ráðherra í júlí með umræðu um veiðigjöld á þessu stigi svo ég ætla að fá aðeins að ræða við hæstv. fjármálaráðherra um áfengi hins vegar og áfengissölu.
Fyrirkomulag fríhafnarverslan í Leifsstöð, þessara sem kallaðar eru brottfarar- og komuverslanir og áður voru reknar af íslenska ríkinu, hefur tekið breytingum þannig að nú eru þær reknar af þýsku fyrirtæki, af þýsku einkareknu fyrirtæki. Það rifjast upp fyrir mér hérna að árið 2016 var Isavia ekki öruggt um að lagaheimild væri fyrir smásölu áfengis í Leifsstöð. Fjármálaráðuneytið var þá ekki sammála því með vísan til tollalaga og var í alls kyns lögfræðifimleikum í túlkun á þeim, reyndar vísaði líka í breytingar á áfengislöggjöf sem hafði verið stuttu áður og leyfði sér einhvern veginn að gagnálykta frá þeirri breytingu. Þó var það þannig að fjármálaráðuneytið féllst á áhyggjur Isavia og studdi breytingu á tollalögum þannig að það var skýrt kveðið á um að heimilt sé að selja áfengi og tóbak í þeirri tollfrjálsri verslun sem þá var, sem þá var rekin af ríkinu. Tollalögin í rauninni gera bara ráð fyrir því að áfengissala sé stunduð af hálfu opinberra aðila í Leifsstöð. Þannig t.d. gildir reglugerð fjármálaráðherra sem sett hefur verið með vísan til tollalaga aðeins um verslanir í opinberri eigu. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann telji þörf á að endurskoða löggjöf og reglur í þessum efnum og þá með það að markmiði að leyfa Íslendingum að sitja við sama borð og erlend stórfyrirtæki sem eru núna farin að reka hér áfengisverslun.