156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

endurskoðun reglna um smásölu áfengis.

[13:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég var reyndar að spyrja hæstv. ráðherra um hans skoðun á því hvað honum fyndist um þetta fyrirkomulag sem er orðið þannig að erlent stórfyrirtæki selur áfengi í Leifsstöð en íslenskum fyrirtækjum, smáfyrirtækjum og stórum fyrirtækjum, virðist ekki vera heimilt að stunda slíka smásölu. Það væri fróðlegt að heyra afstöðu hæstv. fjármálaráðherra í þessu, hans pólitísku sýn á það og hans pólitísku afstöðu til málsins. Mig langar líka að spyrja um reglugerð sem sett er með stoð í tollalögum þar sem fjallað er um og hvers markmið er að tryggja jafnræði og gagnsæi um vöruval og innkaup hjá tollfrjálsri verslun. En þessi reglugerð gildir bara um verslanir í opinberri eigu, hún gildir ekki um verslanir sem reknar eru af einkaaðilum. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort við útboðið hafði verið gert ráð fyrir því að þeir sem tækju þátt í útboðinu myndu gangast undir þessa reglugerð, sem ég tek fram að hefur ekki verið breytt mér vitandi. Og öðru leyti. Hvaða reglur gilda um innkaup þessa þýska stórfyrirtækis á áfengi í verslanir í Leifsstöð?