endurskoðun reglna um smásölu áfengis.
Forseti. Ég bið hv. þm. Sigríði Andersen innilega afsökunar á því að hafa ekki svarað spurningunni sem að mér var beint. Mín afstaða er sú að þegar ríkið úthlutar takmörkuðum gæðum þá beri að gera það á markaðsforsendum sé þess nokkur kostur. Síðan verð ég bara að viðurkenna að ég er ekki í aðstöðu til þess að svara í smáatriðum fyrir um gildissvið reglugerðar gagnvart þessu fyrirtæki en er almennt þeirrar skoðunar að einkaaðilar eigi að hafa umtalsvert frelsi þegar kemur að því að stýra því hvað er selt í þeirra verslun.