aðgerðir stjórnvalda til að lækka vexti og verðbólgu.
Virðulegi forseti. Ég bið hér um að hæstv. forsætisráðherra gefi þinginu skýrslu um hvaða aðgerðir ríkisstjórnin hyggst ráðast í til að ná niður vöxtum og verðbólgu. Það er ljóst að þær aðgerðir sem kynntar hafa verið hingað til hafa engan árangur borið. Verðbólga hefur hækkað á ný og er nú 4,2%. Neysluvísitalan hækkaði um 0,84% í júní og án húsnæðisliðar um 0,9%. Hækkanir á flugi, gistingu, veitingum og reiknaðri húsaleigu ýta undir þessa þróun.
Samfylkingin lofaði fyrir kosningar og fór hér um héruð og lofaði því að berja niður vextina með sleggju. Það eru engin merki um nokkurn árangur þessarar aðferðar eða stefnu hjá ríkisstjórninni. Vextir eru enn þá háir. Verðbólguvæntingar fara þverrandi og traust til efnahagsstjórnar er lítið.
Virðulegi forseti. Þjóðin á rétt á svörum. Forsætisráðherra þarf að gera grein fyrir því hvernig ríkisstjórnin ætlar að snúa þessari þróun við. (Forseti hringir.) Hver er stefnan? Hver eru úrræðin og hvenær má sjá árangur? Við þurfum efnahagsstjórn sem byggir á ábyrgð og festu en ekki innantómum kosningaloforðum.