aðgerðir stjórnvalda til að lækka vexti og verðbólgu.
Virðulegi forseti. Ég vil bara taka undir mjög rökrétta tillögu frá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Bæði er málið mjög nauðsynlegt af ástæðum sem ég þarf ekki að endurtaka en hv. þingmaður fór yfir en síðan er það líka náttúrlega kjörið, úr því að við erum hér enn þá í þinginu, að nýta tímann vel. Málið sem hér er rætt er nú bara eitt það mikilvægasta sem við erum að fást við og það hefur ekki alveg verið samhengi á milli stóryrtra yfirlýsinga hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnar, bæði eftir að þau tóku við og líka fyrir, þannig að það er afskaplega skynsamlegt og væri í rauninni mjög óeðlilegt ef við myndum ekki verða við beiðni hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur.