156. löggjafarþing — 79. fundur,  4. júlí 2025.

aðgerðir stjórnvalda til að lækka vexti og verðbólgu.

[13:36]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, ég ætla að taka undir þessa beiðni. Ég heyrði reyndar ekki betur í fyrirspurnatíma hér áðan en að hæstv. forsætisráðherra lýsti einmitt miklum áhyggjum með stöðuna og nauðsyn þess að brugðist verði við. Þannig að ég held að í ljósi þess að þingið er hér enn að störfum þá sé mjög mikilvægt að við tökum þessa umræðu hér. Við sjáum ekki í einhverjum öðrum þingmálum sem liggja fyrir þessu þingi neinar aðgerðir sem ættu að ná hér niður verðbólgu. Við höfum heldur ekki séð nein mál sem lúta að því að auka verðmætasköpun, þvert á móti höfum við hér ítrekað verið að fjalla um skattahækkunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar. Ég ætla því að taka undir þessa beiðni og vona, vegna þess að hæstv. forsætisráðherra tók undir áhyggjur af stöðunni, að hægt verði að verða við henni og við getum átt málefnalegar umræður um þetta mikilvæga mál sem ég tek undir með forsætisráðherra að er líklega stærsta og mikilvægasta málið fyrir fjölskyldur í landinu.