útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. framsögumanni, Grími Grímssyni, fyrir hans ræðu en einnig gott samstarf í allsherjar- og menntamálanefnd. Við erum hér að fjalla um afturkölluð verndar og ég mun á eftir mæla fyrir minnihlutaáliti hvað það varðar. En mig langar til að spyrja hv. þingmann af hverju nefndin vildi ekki ganga lengra hvað varðar ástæður til afturköllunar verndar. Er ekki ástæða til að horfa í breiðara ljósi til grundvallarhagsmuna íslensks samfélags og er ekki ástæða til að telja að fleiri brotaflokkar geti reynst hættulegir samfélaginu þó að þeir teljist jafnvel minni háttar? Í minnihlutaáliti munum við leggja til að útvíkka þetta atriði þar sem við teljum að það beri að veita stjórnvöldum rýmri heimildir til afturköllunar verndar heldur en hér er lagt til. Ég vil sömuleiðis fá að ítreka að á síðasta kjörtímabili var tekin sú stefna af íslenskum stjórnvöldum að við myndum samræma okkar löggjöf og horfa þá fyrst og síðast til Norðurlandanna. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort við þurfum ekki að ganga enn lengra hvað það varðar.