útlendingar.
Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir andsvarið. Að mínu mati og að mati meiri hluta nefndarinnar er hér gengið nægilega langt til að ná fram markmiði því sem sett er fram með frumvarpinu. Að mati okkar í meiri hlutanum þá er það svo að fólki sem hér óskar eftir vernd getur orðið á í minni háttar málum eins og okkur hinum sem hér búa. Ég nefni umferðarlög í því sambandi, mér finnst ekki koma til álita að brot gegn umferðarlögum og þá á ég við svona kannski minni háttar brot, að aka of hratt t.d., sé ástæða til þess að vernd viðkomandi sé afturkölluð. Ef við tölum um önnur minni háttar brot, svo sem eins og þjófnað sem er samkvæmt hegningarlögum ekki mjög alvarlegt brot eitt og sér, geta þau mörg saman verið alvarleg. Það er þekkt í umræðu um skipulagða brotastarfsemi að þjófnaður þar sem fólk er gert út til þjófnaðar getur fallið undir það að vera skipulögð brotastarfsemi. Í nefndaráliti meiri hluta er gert ráð fyrir því að afturköllun alþjóðlegrar verndar eigi við um skipulagða brotastarfsemi þannig að það er raunverulega lögreglunnar að sýna fram á að viðkomandi hafi brotið af sér þannig að það varði við ákvæði um skipulagða brotastarfsemi og þannig geti það átt við.
Spurt var sérstaklega af hverju nefndin hafi ekki viljað ganga lengra og ég hef hér reynt að gera grein fyrir þeim ástæðum að ekki sé gert ráð fyrir að ganga lengra, jafnvel — ég ætla að bakka aðeins. Það er auðvitað þannig, af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega hagsmuni íslensks samfélags, að það þarf náttúrlega að horfa á hagsmuni íslensks samfélags og hagsmuni einstaklingsins (Forseti hringir.) sem um ræðir. Hér teljum við nægilega langt gengið í því efni.