156. löggjafarþing — 81. fundur,  5. júlí 2025.

útlendingar.

278. mál
[10:40]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tek undir með hv. þingmanni, enda er hann reynslumikill lögreglumaður í sínu fyrra starfi, hvað varðar alvarleika brota. Hins vegar get ég ekki látið hjá líða að spyrja hv. þingmann nánar um það. Við segjum kannski að umferðarlagabrot eða smávægilegir þjófnaðir sé ekki alvarlegt þegar það er kannski gerist einu sinni eða tvisvar, en þegar við erum með margítrekuð atvik hjá viðkomandi einstaklingi, margítrekaðan hraðakstur eða umferðarlagabrot, og viðkomandi virðir ekki lög á Íslandi — umferðarlög eru líka lög — og hann er jafnvel, eins og hv. þingmaður nefnir, með margítrekuð innbrot eða margítrekuð smærri brot, þá finnst mér það gefa til kynna að viðkomandi einstaklingur ætlar ekki að beygja sig undir íslensk lög og reglur sem gilda í íslensku samfélagi. Þar með lít ég svo á að viðkomandi sé í rauninni búinn að fyrirgera rétti sínum til þess að búa hér ef hann ætlar ekki að gera það í sátt og samlyndi í þessu samfélagi. Ég tel mikilvægt að heimildir til afturköllunar verndar séu rýmri en hér er getið.

Ég vil líka fá að nefna umborna dvöl sem hér er verið að veita núna. Ég hef áhyggjur af því að hér er nefnt að það þurfi að bregðast við (Forseti hringir.) þeim einstaklingum sem falla ekki undir skilyrði um alþjóðlega vernd og þá er búinn til nýr dvalarleyfisflokkur. (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að þetta geti orðið vandræðaflokkur sem (Forseti hringir.) margir einstaklingar eru settir í sem svo daga uppi í kerfinu?

(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á ræðutíma sem er tvær mínútur.)