156. löggjafarþing — 81. fundur,  5. júlí 2025.

útlendingar.

278. mál
[10:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir andsvarið. Varðandi fyrra atriðið sem hún nefndi þá held ég að ég sé svo sem búinn að fara yfir það, það er kannski ekki mikill ágreiningur heldur kannski álitamunur á milli meiri hluta og minni hluta um það hvort og að hve miklu leyti brot eiga að verða þess valdandi að það sé hægt að afturkalla vernd.

Varðandi dvalarleyfisflokkinn umborin dvöl þá get ég tekið undir það með hv. þingmanni að þetta kunni að verða vandræðaflokkur, það kunni að verða þannig að þarna verði einstaklingar sem hafa dvalarleyfi á grundvelli þessa flokks um langan tíma. Þá getur maður líka, ef ég leyfi mér að fantasera hér aðeins, afsakið, frú forseti, velt vöngum yfir því hvaða áhrif það getur haft; ef viðkomandi er í umborinni dvöl og hann er síðan lengi í umborinni dvöl, er þá komið að því að hann hafi einhver sérstök tengsl við landið þannig að hann fái dvöl á öðrum grundvelli? Ég held að við komum aldrei almennilega í veg fyrir þetta en ég held að það sé mikilvægt samt sem áður að við höfum þennan flokk til þess að þeir sem við komum ekki héðan, fólk sem við viljum koma héðan en við komum ekki héðan, hafi dvalarleyfi en það sé mjög skýrt að það eigi að brottvísa viðkomandi og það dvalarleyfi eigi ekki að gilda lengur heldur en bara að því tímamarki að stjórnvöld geti brottvísað viðkomandi og flutt úr landi. Ég held að það sé mikilvægt að það sé til dvalarleyfisflokkurinn svo að viðkomandi sé ekki á milli vita og hafi ekkert leyfi til dvalar.