156. löggjafarþing — 81. fundur,  5. júlí 2025.

útlendingar.

278. mál
[10:45]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Sá sem hér stendur hefur ekki setið í allsherjar- og menntamálanefnd í gegnum árin og ekki komið beint að þessum málum. En það er áhugavert hvert við erum komin frá því þegar við að ræða þessi mál bara fyrir örfáum árum. Það þótti bara satt að segja ljótt að ræða þessi mál og það var gríðarleg andstaða hjá núverandi stjórnarflokkum við þessi mál sem við vorum að leggja fram hér sem stjórnarmeirihluti fyrir örfáum árum, tveimur, þremur, fjórum, fimm árum. Gríðarleg viðhorfsbreyting. Nú er það svo að framsögumaður málsins er lögreglumaður til margra ára, hefur stundað rannsóknir, starfað hjá Europol og komið að þessum málum, í alþjóðasamhengi líka. Það sem ég var að hugsa núna þegar ég var að hlusta á þetta, til þess að setja þetta í samhengi við fyrri ár — ég bendi líka á góða ræðu hv. þingmanns í störfum þingsins hér 18. júní sem fjallar um m.a. þau mál sem eru þá loksins að renna hér í gegn eftir öll þessi ár. En þetta með smábrotin sem fara þá ekki upp í, mögulega skilorðsbundnir dómar og annað — ég velti fyrir mér, eins og með skipulagða glæpastarfsemi, þetta er orðið sem er farið að nota, að menn eru hér kannski í þrjá mánuði og lögreglan hefur ekkert, getur ekkert fylgst með þessu. Menn brjóta og brjóta af sér, eru teknir aftur og aftur og svo fara menn bara eitthvað annað. Þá er ég að velta fyrir mér: Europol er að sjálfsögðu með miklar upplýsingar og líka Interpol. Þarf ekki að gera þetta samræmt á milli landa eða eigum við að hafa það þannig að menn geti bara vaðið á milli landanna og brotið af sér og safnað saman upp í kannski tugi mála, hundruð mála og það er ekki tekið á málunum en það hefur gríðarleg áhrif í heildarsamhenginu, t.d. innan Evrópu, innan Schengen? Hefur þetta eitthvað verið hugsað? Ég hugsa bara um ákveðinn einstakling sem braut af sér hérna á tveggja vikna fresti, fékk ákæru á tveggja vikna fresti um áraskeið þangað til það endaði í alvarlegu máli og hann fékk dóm. Ef hv. þingmaður gæti aðeins komið inn á þetta.