156. löggjafarþing — 81. fundur,  5. júlí 2025.

útlendingar.

278. mál
[10:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Mér er ljúft og skylt að svara þessu og ég verð að viðurkenna að mér finnst þessi umræða skemmtileg vegna þess að hún er áhugaverð. Í fyrsta lagi er það þannig — ég ætla ekki að saka hv. þingmann, sem ég þakka fyrir andsvarið, um að hafa ruglast en það er þannig að frumvarpið og það sem við tölum um hér varðar afturköllun alþjóðlega verndar, þ.e. fólk sem er frá þriðju ríkjum, utan Schengen. Það er þannig, hvort sem það er því miður eða ekki, að þeir sem koma hér, eins og hv. þingmaður lýsti, í brotatilgangi, þeir koma hér til að stela úr búðum, fara í innbrot. Það eru jafnvel dæmi um að menn séu að stela hlutum rándýrra landbúnaðartækja og það er svo augljóst að þar er um að ræða skipulagða brotastarfsemi, eða augljóst fyrir mér, það þarf auðvitað að sanna það. En það er alla vega grunur um að slíkt sé skipulögð brotastarfsemi. Og þá segi ég: Ef það væru þriðju ríkja ríkisborgarar sem ættu í hlut þá á frumvarpið við, það á við um skipulagða brotastarfsemi.

En síðan vil ég fá að nefna það aðeins í ræðustól fyrst ég hef tækifæri til að það umhverfi þegar brotamenn eru sendir á milli landa, eiga tíu mál á Íslandi, tíu mál í Þýskalandi, tíu mál í Hollandi og þar fram eftir götunum — það varðar raunverulega alþjóðlegt samstarf lögregluyfirvalda og er gríðarlega mikilvægt. Og það er gríðarlega mikilvægt að íslensk lögregluyfirvöld séu styrkt í því sambandi, að geta verið í þessum alþjóðlegu samskiptum því að það er auðvitað rándýrt. Það er auðvitað rándýrt að vera með t.d. tengslafulltrúa hjá Europol. Það kostar mikið. En þetta skiptir verulega miklu máli og ég held að það þurfi að hafa það í huga varðandi það atriði sem hv. þingmaður talaði um, að þegar menn hafa brotið af sér í Þýskalandi þá geti ég fengið upplýsingar um það, þannig að það gæti haft áhrif á dóminn hér.