156. löggjafarþing — 81. fundur,  5. júlí 2025.

útlendingar.

278. mál
[10:49]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég segi, kannski að ég komi því aðeins að hér; það er ekki gott að í svona stóru máli sem ætti að fá virkilega stóra og mikla umræðu í þingsal, að við séum að ræða þetta hér 5. júlí, á laugardagsmorgni, með nokkra í salnum. Eitthvað sem varðar grundvallarhagsmuni þjóðar, þjóðaröryggishagsmuni og að viðhalda því samfélagi sem við höfum búið til, þetta góða samfélag, um áratugaskeið og byggt upp. Þarna er virkileg hætta á ferðum og hefur verið lengi og þetta hefur alveg verið vitað árum saman. Við höfum þetta frá öðrum Norðurlöndum. Við þekkjum hvernig Danir brugðust við fyrir töluverðu síðan. Við vitum alveg hvað er búið að gerast í Svíþjóð síðustu 15–20 árin og það samfélag er komið á heljarþröm í þessum málum. Við vitum að Norðmenn og Finnar hafa tekið kannski aðeins öðruvísi á þessu. En við höfðum öll tækifæri til að fara þessa leið og að vera á sambærilegum nótum og aðrar Norðurlandaþjóðir, sem eru oft okkar fyrirmynd þegar við erum að takast á við málin. En þetta var bara erfitt núna síðustu árin að taka þessi skref. Þess vegna spyr ég bara persónulega hv. alþingismann Grím Grímsson hvernig hann hefur skynjað þetta. Nú er hann að mæla fyrir framsögu meiri hluta nefndar en það gæti alveg verið áhugavert fyrir okkar umræðu hér hver hans persónulegu sjónarmið hafa verið, hv. þingmanns, starfandi hjá Europol, sem hefur séð þetta allt saman í stóra samhenginu, miklu betur heldur en nokkur hér inni og þótt víðar væri leitað í þessu samfélagi, hvernig hann hefur litið á þessa pólitík, hvernig hún hefur verið rædd í þessu landi, um þessi mál og hans persónulegu sjónarmið. Ég held það sé bara allt í lagi að fá þau aðeins fram þegar við erum með kannski einn helsta sérfræðing þjóðarinnar á þessu sviði hér sem framsögumann máls með gríðarlega þekkingu og reynslu af þessum málum, áratugaferil innan lands og utan, að fá þau sjónarmið fram.