útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið og spurninguna sem í því fólst. Ég ætla kannski að fá að nefna líka það sem hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir sagði hér og ég náði ekki að ávarpa í svari til hennar. Það varðar afstöðu þeirra sem hingað koma og fá alþjóðlega vernd ef þeir vilja ekki, hvað á maður að segja, aðlaga sig að þeim reglum sem hér gilda og raunverulega gefa bara frat í þær, ef svo má að orði komast. Það er að mínu mati ólíðandi. En þá verður maður bara að velta vöngum yfir því: Erum við þá komin á þann stað að við viljum fella niður verndina sem viðkomandi hefur fengið vegna þess að hann er flóttamaður? Það eru auðvitað bara einhverjar vangaveltur sem við getum haft og alla vega á þessu stigi þá tel ég ekki að svo eigi að vera.
Varðandi þær spurningar sem beint er til mín sérstaklega þá vil ég bara segja það, og ég held að ég hafi nú sagt það hér áður, að við skulum vara okkur á því að hingað berist ekki sá vandi sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson lýsti og er raunveruleiki á Norðurlöndunum. Við skulum reyna að læra af þeim. Fyrir nokkrum áratugum, kannski þegar ég var að byrja í lögreglunni á níunda áratugnum, var talað um að allt sem gerðist á Norðurlöndunum kæmi hingað á svona 20 árum. Þessi tími hefur styst. Það sem gerist á Norðurlöndunum gerist fyrr hér. Ég hef sagt frá því að það sé vandi í Noregi og Finnlandi vegna þess að sænski vandinn er að dreifa sér þangað og líka til Danmerkur. Við höfum séð það í fréttum. Mín persónulega skoðun er sú að við eigum að gæta þess að þetta gerist ekki. (Forseti hringir.) Við skulum reyna að vera bæði þannig (Forseti hringir.) að við náum að gæta að þessum vanda en líka að við göngum ekki of langt.