útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni minnihlutaálits í málinu fyrir ágæta yfirferð. Ég velti fyrir mér hvort hún geti varpað örlitlu ljósi á þetta fyrirbæri sem er lagt til í þessu frumvarpi, sem er nýtt hér, það er verið að leggja til nýtt ákvæði, sem er umborin dvöl. Það er reifað í frumvarpinu að þeir sem uppfylla skilyrði til þess að fá umborið dvalarleyfi geti fengið atvinnuleyfi. Ég bara velti því fyrir mér af því að mér hefur þótt vanta aðeins í þessa umræðu hér reifun á þessu nýja úrræði, hvort hv. þingmaður geti varpað ljósi á umfjöllun nefndarinnar hvað þetta varðar. Ég er einkum og sér í lagi að velta fyrir mér mati á áhrifum þessa nýja úrræðis. Í frumvarpinu sjálfu er kafli um mat á áhrifum og ég tel, eða ég hef a.m.k. væntingar til þess að það standist sem þar segir um að frumvarpið hafi áhrif til lægri útgjalda í þjónustu við umsækjendur um vernd vegna umsóknar þeirra um vernd. Þá er verið að vísa í þjónustu sem sveitarfélög og ríkissjóður standa straum af fyrstu tvö árin þannig að það er verið að að þrengja það úrræði. En mér finnst vanta umræðu um mat á áhrifum þessa nýja úrræðis um umborna dvöl. Er það réttur skilningur minn að þeir sem hana hljóta, umborna dvöl, njóti þá engrar félagslegrar þjónustu, þá eins og menn hafa verið að gera sem hafa verið að bíða eftir afgreiðslu umsóknar um alþjóðlega vernd?