útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég er ekki alveg viss um að ég sé alveg búin að átta mig á réttaráhrifum umborinnar dvalar en tek undir það sem kemur fram í nefndaráliti með breytingartillögu 1. minni hluta nefndarinnar, að það er full ástæða til að fylgjast mjög grannt með því og ekki síður í ljósi þess að þetta úrræði hefur verið ákveðinn segull í þeim Evrópulöndum sem hafa boðið upp á þetta. Ég nefni t.d. bara Þýskaland sem tók ákveðna pósitífa ákvörðun um að veita Tyrkjum heimild til umborinnar dvalar. Það var kominn svo mikill fjöldi af Tyrkjum sem sátu þar og biðu eftir einhverri afgreiðslu og væntanlega í ljósi sérstakra tengsla Þýskalands og Tyrklands, innflytjenda frá Tyrklandi í Þýskalandi, þá hefur það væntanlega líka haft áhrif á þá ákvörðun á sínum tíma þar sem það eru alveg örugglega einhverjar milljónir í umborinni í dvöl í Þýskalandi. Ég hendi nú þessari tölu fram með fyrirvara en það var a.m.k. fyrir mörgum árum mjög mikill fjöldi í Þýskalandi í svokallaðri umborinni dvöl og án efa hefur það haft áhrif á fjölgun innflytjenda í Þýskalandi þótt margt annað hafi auðvitað spilað þar inn í líka. Mér finnst mikilvægt að menn fylgist með því. Mér finnst reyndar vont að ekki hafi verið fjallað um það í frumvarpinu sjálfu og kannski í meðförum nefndarinnar hvaða áhrif þetta getur haft sem segull á komur manna hingað sem vilja dvelja hér. En ég fagna því svo sem að menn ætli að — og ég vona að stjórnvöld (Forseti hringir.) taki þessari brýningu frá minni hlutanum í þessu efni. En ég hef engar sérstakar frekari spurningar í þessum málum.