útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar og tek undir orð hv. þingmanns og ítreka það sem ég sagði hér í fyrra andsvari mínu, að það er ástæða til að fylgst verði mjög náið með þessum dvalarleyfisflokki. En vitaskuld eru alþjóðlegar skuldbindingar okkar með þeim hætti, og það er rétt að árétta það, að eins og kom fram í framsögu hv. þm. Gríms Grímssonar þá höfum við undirgengist alþjóðlegar skuldbindingar þannig að við megum ekki senda einstaklinga til heimaríkis ef lífi þeirra gæti verið stefnt í hættu. Þá erum við kannski með þessari aðgerð, afturköllun alþjóðlegrar verndar, á þeim stað að við erum búin að afturkalla verndina en getum ekki sent viðkomandi til baka ef heimaríkið tekur ekki á móti viðkomandi t.d., það getur verið ein ástæða, eða að það sé talið að lífi viðkomandi sé stefnt í voða. Þá getur það ekki gerst að mínu mati að viðkomandi fái dvalarleyfi hér í umborinni dvöl. Eins og ég nefndi hér áðan þá getur sá einstaklingur ekki að mínu mati gengið hér um íslenskt samfélag og verður þar af leiðandi að vera í lokuðu brottfararúrræði þangað til aðstæður breytast og hægt er að koma viðkomandi einstaklingi til síns heima.