raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta hv. atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, um raforkuviðskipti. Frumvarpið felur í sér að lagðar eru til breytingar á raforkulögum, nr. 65/2003, sem mæla fyrir um tiltekna háttsemi og eftirlitsreglur á sviði raforkuviðskipta með það að markmiði að tryggja gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti árétta eftirfarandi atriði:
Við umfjöllun nefndarinnar og í umsögnum sem henni bárust eru gerðar athugasemdir við ákvæði um gildistöku laganna og lagt til að betur færi á að fresta gildistöku ákveðinna ákvæða í frumvarpinu svo að aðilum á raforkumarkaði gefist betra færi á að aðlaga sig breyttu regluverki. Í umsögnum er því einnig haldið fram að frumvarpið taki ekki nægjanlega tillit til þeirra breytinga sem gerðar voru á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins með setningu REMIT II reglugerðarinnar. Tilgangur REMIT II er einkum sá að festa í sessi þær túlkanir og framkvæmdaleiðbeiningar sem mótast höfðu í framkvæmd reglugerðarinnar. Að mati meiri hlutans er að nokkru leyti um að ræða útfærslu- og túlkunaratriði sem unnt væri að skýra frekar með leiðbeiningum Raforkueftirlitsins og/eða með setningu reglugerða. Meiri hlutinn áréttar að hvorki REMIT né REMIT II hafa verið innleiddar í EES-samninginn.
Í umsögn sinni til nefndarinnar leggur Rarik til að viðmið um aðila sem falla undir hugtakið stórnotendur samkvæmt skilgreiningu í 19. tölulið 3. gr. raforkulaga verði hækkað í 600 GWst. Meiri hlutinn bendir á að viðmið um stórnotendur er ekki til umfjöllunar í frumvarpinu og telur því ekki tilefni til að bregðast við tillögu Rariks.
Í umsögn Samtaka iðnaðarins er kallað eftir því að skýrt verði hvaða upplýsingar stórnotenda teljast vera innherjaupplýsingar sem þeim ber að birta. Hluti þeirra upplýsinga sem geta haft áhrif á raforkuverð sé bundinn trúnaði samkvæmt samningum. Þá geti birting ákveðinna upplýsinga skaðað hagsmuni viðkomandi fyrirtækis og móðurfyrirtækja þeirra. Telja samtökin mikilvægt að það liggi fyrir hvaða upplýsingar skuli birta og um hvaða upplýsingar trúnaður skuli ríkja, svo sem mikilvæga hagsmuni viðskiptavina raforkufyrirtækja.
Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið í umsögn samtakanna og telur mikilvægt að tiltaka að meðal upplýsinga sem stórnotendum væri skylt að birta gæti talist ófyrirséð rafmagnsleysi eða truflanir, fyrirhugað viðhald eða breytingar á eftirspurn, langtímabreytingar á eftirspurn, skuldbindingar um truflandi álag og þátttaka á orkumarkaði. Meiri hlutinn telur rétt að árétta að í undantekningartilvikum er markaðsaðila heimilt að fresta á eigin ábyrgð birtingu innherjaupplýsinga þegar það er nauðsynlegt til að skerða ekki lögmæta hagsmuni hans. Skilyrði fyrir frestun eru að hún villi ekki um fyrir almenningi, markaðsaðili geti tryggt trúnað um upplýsingarnar og taki ekki ákvarðanir um viðskipti með heildsöluorkuafurðir á grundvelli þeirra.
Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting á 1. gr. frumvarpsins en þar er að finna skilgreiningar. Leggur nefndin til breyttar skilgreiningar á hugtökunum aðili, heildsöluorkuafurð, innherjaupplýsingum, innherjasvikum og markaðsaðila.
Aðili. Meiri hlutinn leggur til að við 1. gr. frumvarpsins verði bætt skilgreiningu á hugtakinu aðili til samræmis við REMIT-reglugerðina. Breytingin sé til þess fallin að gera skýrari greinarmun á hugtökunum aðili, markaðsaðili og milligönguaðili í raforkuviðskiptum.
Heildsöluorkuaðili. Breytingartillaga nefndarinnar er til þess fallin að skerpa á því að samningar um afhendingu, dreifingu og flutning séu ekki heildsöluorkuafurðir nema í tilviki stórnotenda. Þá er með tillögunni tryggt að ekki sé gengið lengra en EES-samningurinn kveður á um þegar kemur að innleiðingu gerðarinnar í EES-rétt. Það áréttast að innleiðingin hefur ekki enn átt sér stað.
Innherjaupplýsingar. Meiri hlutinn leggur til að hugtakið innherjaupplýsingar verði skilgreint til samræmis við reglugerð REMIT II. Er þeim breytingum ætlað að veita markaðsaðilum aukið réttaröryggi og auka skýrleika. Þá leggur meiri hlutinn til að breytt skilgreining verði felld undir 20. gr., sbr. g-lið 5. gr. frumvarpsins.
Innherjasvik. Meiri hlutinn leggur til að skilgreining hugtaksins innherjasvik verði felld brott úr 1. gr. frumvarpsins, þar sem hugtakinu eru þegar gerð greinargóð skil í ákvæði 20. gr. b, sbr. b-lið 5. gr. frumvarpsins, sbr. og tillögu meiri hlutans hér á eftir.
Markaðsaðili. Meiri hlutinn leggur til að hugtakið markaðsaðili verði skilgreint til samræmis við REMIT-reglugerðina. Skilgreiningin verði skýrari og taki af vafa um að bæði flutningsfyrirtækið og dreifiveitur teljast markaðsaðilar á heildsöluorkumarkaði. Þá leggur meiri hlutinn til að skilgreiningin nái einnig til þeirra sem eiga í viðskiptum og/eða gefa fyrirmæli um viðskipti. Að endingu leggur meiri hlutinn til að orðin „í atvinnuskyni“ falli brott úr skilgreiningunni.
Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar gagnaskil markaðsaðila í 5. gr. Meiri hlutinn leggur til breytingar á 5. gr. frumvarpsins sem kveður á um að bæta við raforkulög sjö nýjum greinum sem er ætlað að gera skyldur til gagnaskila skýrar og afdráttarlausar.
Lagt er til að í nýrri 20. gr. d verði fjallað um skráningu markaðsaðila, í samræmi við skráningarskyldu REMIT-reglugerðarinnar, sem tryggir eftirlitsaðilum yfirsýn. Í umsögn sinni til nefndarinnar telur Raforkueftirlitið að ákvæði frumvarpsins séu ófullnægjandi hvað þetta varðar og ekki líkleg til að ná þeim árangri sem þeim er ætlað. Gagnsæi og eftirlit með markaðsviðskiptum verði ekki tryggt með núverandi orðalagi frumvarpsins. Styrkja þurfi valdheimildir Raforkueftirlitsins og færa þær nær þeim sem eiga við um sambærilegar eftirlitsstofnanir líkt og Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið.
Í tillögu meiri hlutans er að finna hugtakið skynsamur markaðsaðili, en með því er vísað til hugtaksins bonus pater familias, þ.e. huglægs mælikvarða á það hvernig hinn góði og gegni þegn hegði sér við tilteknar aðstæður.
Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Raforkueftirlitsins og leggur til breytingu sem er ætlað að gera ákvæðið afdráttarlaust um að í því felist skylda markaðsaðila, þriðju aðila sem koma fram fyrir hönd markaðsaðila og viðskiptavettvang eða milligönguaðila í raforkuviðskiptum til að standa skil á gögnum til Raforkueftirlitsins.
Í þriðja lagi er lögð til breyting er varðar bann við innherjasvikum, b-liður 5. gr.. Meiri hlutinn leggur til breytingu á b-lið 5. gr. frumvarpsins þar sem lögð er til ný grein, 20. gr. b. Meiri hlutinn telur að betur fari á því að skilgreina hugtakið innherjasvik þar, svo reglugerðarheimild og heimild Raforkueftirlitsins til að setja leiðbeiningar um túlkun á innherjasvikum byggist fremur á sérstöku lagafrumvarpi en almennri heimild til setningar leiðbeininga samkvæmt 3. mgr. 24. gr. laganna. Telur meiri hlutinn það til þess fallið að styrkja réttargrundvöll leiðbeininganna og koma í veg fyrir að ólögmæt háttsemi geti talist lögmæt á þeim grundvelli að leiðbeiningar Raforkueftirlitsins um innherjasvik hafi skort fullnægjandi lagastoð.
Í fjórða lagi er lögð til breyting er varðar birtingu innherjaupplýsinga. Meiri hlutinn leggur til að fyrirsögn nýrrar greinar í c-lið 5. gr. verði „Opinber birting innherjaupplýsinga“. Þá leggur meiri hlutinn til breytingar á 1. efnisgrein sama liðar sem ætlað er að skýra ákvæðið frekar og færa til samræmis við REMIT-reglugerðina.
Að lokum leggur meiri hlutinn til breytingar á gildistökuákvæði frumvarpsins. Í umsögnum sem meiri hlutanum bárust kemur fram sú ósk aðila á raforkumarkaði að veittur verði frestur til aðlögunar, svo þeim gefist tækifæri til að bregðast við þeim breytingum sem lagðar eru til með frumvarpinu. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og leggur til að gildistöku ákvæðis 5. gr. frumvarpsins verði frestað um níu mánuði eða til apríl 2026.
Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
Undir nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Sigurjón Þórðarsonar, Eiríkur Björn Björgvinsson, María Rut Kristinsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Vilborg Kristín Oddsdóttir.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir gott samstarf allra í hv. atvinnuveganefnd í þessu máli. Þetta mál er ekki einfalt en gríðarlega mikilvægt. Það er mikilvægt að orðalag í frumvarpinu sé nákvæmt og það er nauðsynlegt að túlkun frumvarpsins sé skýr. Svo mun koma reynsla á þetta verklag og mikilvægt að fylgjast með því hvernig innleiðing frumvarpsins reynist. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.