156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

fundarstjórn forseta.

[10:00]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Eins og allir vita erum við þingflokksformenn enn að semja um þinglok eins og eðlilegt er og allt svo sem í eðlilegum farvegi hvað það varðar. En við erum aðeins að velta fyrir okkur, frú forseti, þar sem stjórnarandstaðan hefur ítrekað sýnt að þegar gerðar eru glufur á dagskránni til þess að setja önnur mál á dagskrá þá hafa þau gengið greiðlega fyrir sig. Þessi mál þurfa almennilega umræðu eins og vera ber og þar sem núna er kominn 7. júlí og samningar ekki enn í höfn, hvort það væri skynsamlegt að búa til glufur til þess að þessi risastóru önnur mál sem eru enn ekki nægilega rædd hér í þingsal fái svigrúm til þess að það verði gert. Nú má ekki misskilja mig. Það er nú þannig að í umræðu um veiðigjöld hefur það mál tekið ýmsum snúningum og það eru alltaf að koma nýjar upplýsingar í ljós þannig að okkur vantar ekki umfjöllunarefnið í því máli. En við viljum fá að nefna og ítreka að (Forseti hringir.) það stendur ekki á stjórnarandstöðunni að ræða öll þau mýmörgu mikilvægu mál sem eru enn svo gott sem órædd hér í þingsal.