umræða um þingmál.
Frú forseti. Ég vil taka undir orð hv. þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, Hildar Sverrisdóttur, hvað það varðar að forseti íhugi að skapa svigrúm á dagskrá þingsins næstu daga eftir atvikum til að gera okkur þingmönnum kleift að ræða þau mál sem við þekkjum í sögulegu samhengi, mál sem raunverulega kalla á umræðu þannig að flokkar og einstakir þingmenn geti skilið eftir sjónarmið og rætt þau, eiga það til að lenda í mjög þröngri stöðu tímalega þegar þinglokasamningar hafa náðst. Ég vil hvetja virðulegan forseta til að íhuga að hafa slík mál á dagskrá að einhverju marki næstu dagana til að þingmenn fái það svigrúm sem er raunverulega nauðsynlegt í þessum málum, sem eru mörg hver þeirrar gerðar að þau gætu verið stærstu mál þess þings sem þau lægju fyrir á, en falla dálítið í skuggann núna vegna veiðigjaldaumræðu.