156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:03]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég vil bara taka undir með kollegum mínum, þingflokksformönnum Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins, varðandi dagskrána, að koma hér mikilvægum málum á dagskrá. Við í stjórnarandstöðunni höfum ekki staðið í vegi fyrir því, hér hefur verið ágætisbragur á síðustu þingfundum þar sem við höfum tekið hin ýmsu mál á dagskrá og átt góðar umræður um þau og mál orðið að lögum. Það eru ýmis mál sem við vitum að þurfa umræðu. Við kölluðum eftir því hér í síðustu viku að fá fjármálaáætlun á dagskrá, því var nú hafnað af stjórnarmeirihlutanum en samt sem áður sá forseti tækifæri í dagskrártillögu okkar og setti það mál einmitt strax á dagskrá næsta þingfundar þannig að það skilaði sér mjög vel og það voru mjög góðar umræður um það. Ég hvet hæstv. forseta til að skoða þessa tillögu okkar með opnum hug því að þó svo að við séum auðvitað vissulega tilbúin til að ræða veiðigjaldið eins og þarf þá eru líka önnur mikilvæg mál sem þarf að taka til umræðu hér í þingsal.